158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:59]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Í fyrsta sinn frá árinu 2019 eru nú lögð fram hallalaus fjárlög. En þrátt fyrir að hallalaus fjárlög feli eðli málsins samkvæmt í sér aðhald á fjölmörgum sviðum felur frumvarpið í sér styrkingu á ákveðnum þáttum heilbrigðisþjónustunnar því ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur boðað styrkingu heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 10,7 milljarða viðbótarfjármagni til heilbrigðismála. Þeir fjármunir fara í styrkingu á bráðaþjónustu, endurhæfingu, hjúkrunarþjónustu, sérnám lækna og sérstakar aðgerðir til að stytta biðlista barna. Stærsti einstaki þátturinn eru 5,4 milljarðar vegna raunvaxtar sem endurspeglar aukna þjónustuþörf vegna fólksfjölgunar og öldrunar þjóðarinnar. Þá er 1 milljarði kr. veitt til rekstrar nýrrar bráðamatsdeildar á bráðamóttöku Landspítala og rúmum milljarði til að gera tímabundna fjárveitingu til endurhæfingarstofnana varanlega, m.a. vegna áfengis- og vímuefnameðferðar og annarrar endurhæfingar. Þá er líka um að ræða rekstur nýrra hjúkrunarheimila. Þá er 500 millj. kr. varið í styttingu biðlista barna og 500 millj. kr. í bætta þjónustu við eldra fólk. Þá eru 240 millj. kr. í aðgerðir til að draga úr ofbeldi gegn og meðal barna. Þessar fjárveitingar, virðulegi forseti, endurspegla áherslu ríkisstjórnarinnar á að styrkja rekstrargrundvöll heilbrigðiskerfisins. Undanfarin ár hafa ákveðnir liðir hjá Sjúkratryggingum Íslands verið vanfjármagnaðir og í tíð fyrri ríkisstjórnar voru gerðir stórir samningar um rekstur mikilvægrar heilbrigðisþjónustu en án viðeigandi fjármögnunar. Hér er brugðist við með 5,5 milljarða styrkingu. Þar eru auknar fjárheimildir vegna sjúkraþjálfunar 1,6 milljarðar, lækniskostnaður um 1 milljarður, brýn meðferð erlendis 800 millj. kr., almenn og leyfisskyld lyf samtals 1,6 milljarðar og tannlækningar ríflega 500 millj. kr. Jafnframt þessari styrkingu hafa heilbrigðisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið unnið áhættumat á útgjöldum heilbrigðiskerfisins þar sem farið var yfir stöðu og útgjaldaþróun sjúkratryggingaliða og undirliggjandi veikleika sem hafa myndast í fjármögnun þeirra. Með fjárlögum 2027 er stigið mikilvægt skref í átt að því að færa fjárheimildir þessara liða nær fyrirsjáanlegum útgjöldum. Áfram verður þörf á virkri eftirfylgni með útgjaldaþróun og aðgerðum til að bæta stýringu og eftirlit með greiðslum.

Frú forseti. Heilbrigðiskerfið er ekki undanskilið eðlilegri kröfu um aðhald í rekstri og hagræðingu. Endurskoðun og umbætur eru eilífðarverkefni í öllum rekstri. Aðhald á málefnasviðum heilbrigðisráðuneytisins er m.a. 8 milljarðar vegna Nýs Landspítala þar sem uppsafnaðar fjárheimildir koma á móti og þetta hefur því ekki áhrif á framkvæmdahraða og -áætlun. Þar fyrir utan nemur aðhald á málefnasviðum ráðuneytisins um 2,9 milljörðum kr. Þar vegur þyngst aðhald vegna opinberra innkaupa um 790 millj. kr. og 1% fækkunar stöðugilda hjá ríkinu um 746 millj. kr. þar sem áhersla er lögð á að hlífa framlínustörfum. Aðhaldið nær einnig til stjórnsýslu- og þjónustustofnana. Í stjórnsýslu nemur aðhaldið um 2.212 millj. kr. og tekur m.a. til aðalskrifstofu ráðuneytisins, Sjúkratrygginga, embættis landlæknis og Lyfjastofnunar.

Virðulegi forseti. Það verður áhugavert að heyra sjónarmið hv. þingmanna um fjárveitingar til heilbrigðismála en það er málaflokkur sem flestir láta sig varða.