158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:04]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það er margt áhugavert sem kemur fram í fjárlögunum undir þessum málaflokki en öflugt heilbrigðiskerfi er ein af mikilvægustu stoðum íslensks samfélags. Ég held við getum öll verið sammála um það. Heilbrigðisþjónustan á að vera öllum aðgengileg óháð efnahag. Á því byggist traust almennings á kerfinu. Svo greinir okkur á um hvort aukinn ríkisrekstur sé besta leiðin til að ná skilvirkni í þjónustunni eða hvort fjölbreytt rekstrarform og aukið samstarf við sjálfstætt starfandi bæti þjónustuna. En nú vill svo til að undir forystu ráðherra Samfylkingarinnar, á miðju sumri þegar umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu stóð sem hæst, eru komugjöld í heilsugæslu hækkuð og ný gjöld boðuð. Um er að ræða breytingar sem auka í raun kostnað sjúklinga við að leita sér lækninga en fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, lágtekjufólk eða langveika, skiptir hver króna oft máli. Þetta er ákvörðun sem bitnar harðast á þeim sem höllum fæti standa og með þessu er verið að snúa við þróun sem hafði verið um árabil og í tíð síðustu ríkisstjórnar um að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga í heilsugæslu. Á síðasta áratug lækkaði komugjald úr 1.200 í 500 kr., gjöld aldraðra og öryrkja voru felld niður og önnur lykilgjöld fryst árum saman. Þessar hækkanir hafa skiljanlega fengið mjög hörð viðbrögð úr ýmsum áttum, bæði vegna fordæmis og áhrifa á vísitölu og verðbólgu en ekki síður vegna áhrifanna á þá efnaminni í samfélaginu sem í einhverjum tilvikum munu þurfa að neita sér um þjónustu, t.d. sjúkra- eða iðjuþjálfara. Vegna þess hve bratt þessar hækkanir skullu á og harðra viðbragða langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Eru þeir sem nýta mest umrædda þjónustu breiðu bökin í samfélaginu að hennar mati eða finnst henni koma til greina að hverfa frá þessari ráðagerð og draga hærri (Forseti hringir.) og ný komugjöld t.d. til baka og leita annarra leiða í fjármögnun?