158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:06]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Þetta eru góðar spurningar og áhugaverðar hjá hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur. Það er rétt að hér hafa engar hækkanir orðið á komugjöldum í heilsugæslu, ef við byrjum á þeim. Gjaldið hefur verið 500 kr. og ókeypis fyrir aldraða, öryrkja og börn. Það hafa heldur engar verðlagsuppfærslur verið gerðar í fjölda ára. Þannig að okkur finnst þetta hófleg hækkun, að hækka komugjöld í heilsugæslu úr 500 kr. í 1.000 kr. og sem fyrr greiða aldraðir, öryrkjar og börn ekkert komugjald. Aukinheldur eru komugjöld á heilsugæslu inni í afsláttarstofni í greiðsluþátttökukerfi þannig að þetta mun ekki bitna á þeim sem þurfa að nýta mikla þjónustu.

Síðan heyrði ég að þingmaðurinn kom inn á komugjöld í þjálfun og það er annað mál. Þar erum við að setja komugjöld því að í maí 2024 var undirritaður samningur milli Sjúkratrygginga og sjúkraþjálfara til fimm ára eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi. Það var ekki gert ráð fyrir neinum fjármunum vegna samningsins í fjármálaáætlun eða fjárlögum. Það var rætt við samningaborðið að þessu yrði mætt að hluta með komugjöldum. Til þess þurfti að setja lagaheimild og hún var leidd í lög með breytingu á lögum um sjúkratryggingar 1. júní. Kostnaður vegna sjúkraþjálfunar hefur aukist gríðarlega og ég vona að ég fái að halda áfram með þetta mál í seinna svari.