fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Eins og ég kom inn á í fyrri ræðu minni þá hafa viðbrögðin við þessu verið mjög mikil og hörð, skiljanlega í mörgum tilvikum. Ekki síst vekur það undran að fyrir síðustu kosningar lofaði einmitt Samfylkingin jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu, að efnahagur réði ekki þjónustu og að viðkvæmasti hópurinn yrði settur í forgang, eins og það var orðað, og að eldra fólk fengi heiðurssess í heilbrigðiskerfinu. En nú hefur gagnrýni komið einmitt á það að þessar aðgerðir komi ekki heim og saman við þessi loforð.
Því langar mig, vegna þessarar stefnubreytingar sem ég lýsti líka áðan og þróunar síðustu ára og stefnu fyrri ríkisstjórna — það er náttúrlega þessi gjörbreytta afstaða Samfylkingarinnar sem vekur athygli. (Forseti hringir.) Við höfum rétt á og það væri áhugavert að heyra hvað veldur henni og hvaða skilaboð ríkisstjórnin er að senda þeim sem þurfa mest á þessari þjónustu að halda.