fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég var búin að fara yfir hvað heilsugæsluna varðar að hér er verðlagsuppfærsla sem bitnar ekki á öldruðum, öryrkjum og börnum. Varðandi sjúkraþjálfunina þá er þar samningur sem var mjög vanfjármagnaður og var beinlínis rætt um að komugjöld yrðu notuð til að mæta honum. Við erum með lægstu gjöldin á aldraða og öryrkja og þetta er tímabundið á meðan verið er að endurmeta greiðsluþátttökukerfið. Ég hyggst setja af stað starfshóp sem endurmetur það og metur sérstaklega hvort það eigi að tekjutengja greiðsluþátttöku því að markmiðið er auðvitað að dreifa kostnaði með sem sanngjörnustum hætti, tryggja aðgengi þeirra sem þurfa þjónustu og vernda einstaklinga fyrir mjög háum útgjöldum. En við þurfum líka að huga að sjálfbærni fjármögnunar heilbrigðiskerfisins til framtíðar. Það er nánast óendanleg eftirspurn og við verðum að hafa sjálfbærni í huga.