fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og tek undir margt sem þar kom fram. Það kostar að reka samfélag og það kostar að reka gott samfélag og ég fagna því að hlutfall grunnkerfa í þessu fjárlagafrumvarpi af heildarútgjöldum hefur ekki verið jafn hátt frá því í Covid eða 63,64%. Með öðrum orðum erum við að ná að verja grunnkerfin okkar þrátt fyrir það aðhald sem hér er boðað, það eru 44 milljarðar í aðhald og svo tekjur á móti. Til að halda því til haga erum við að ná að vernda grunnkerfin en ná samt hallalausum fjárlögum í erfiðu umhverfi. Þetta kallar á aga, þetta kallar á festu og hugrekki til að standa í lappirnar og klára málin vegna þess að langbesta kjarabótin sem við gefum fyrirtækjum og almenningi í landinu er auðvitað stöðugleiki, fyrirsjáanleiki og lægri vextir.
En mig langaði aðeins að tala um biðlistamálin af því að ég held að dýrasti biðlisti sem við bjóðum upp á séu líklega biðlistar barna vegna þess að fjárfesting í framtíðinni er líklega mikilvægasta fjárfesting sem við getum farið í. Síðasta vetur voru forsprakkar biðlistar.is mjög duglegir við að halda okkur við efnið, með réttu, og voru að kalla eftir aðgerðum þegar kemur að því að ná að grípa börnin okkar miklu fyrr og ég held að það sé algjörlega þverpólitísk samstaða um að gera það. En ég væri til í að fá að heyra aðeins um það í mínu fyrra andsvari hver staðan er á biðlistum barna? Hvernig verða fjármunir nýttir til að koma enn frekar til móts við þessa stöðu sem hefur verið viðvarandi allt of lengi?