158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir sérlega góða og mikilvæga spurningu. Það er eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar að bæta geðheilbrigðisþjónustu og stytta biðlista barna. Að þessu hef ég unnið frá fyrsta degi, byrjaði á Geðheilsumiðstöð barna og við styrktum hana í tvígang á síðastliðnu ári. Þar fara fram greiningar á ADHD og einhverfu og við fórum líka í innri umbótavinnu til að efla skilvirkni. Síðan erum við í mörgum tilraunaverkefnum, sérstaklega á landsbyggðinni, t.d. á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þar er verið að greina ADHD og Geðheilsumiðstöðin hjálpar þeim og þau eru að verða búin að vinna sig niður sinn biðlista. Á Heilbrigðisstofnun Norðurlands erum við búin að styrkja um geðlækni. Þau eru sömuleiðis að hefja þessar greiningar og við munum líka ætla sálfræðingum í skólum að gera meira. Þau gera greininguna, heilbrigðiskerfi staðfestir hana og hefur meðferð. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er í sama verkefni og barna- og unglingageðdeild (BUGL) er síðan í átaksverkefni vegna elstu barnanna, 5–18 ára, og þeirra sem eiga á hættu að falla í NEET-hópinn.

Einhverfa er líka greind í Ráðgjafar- og greiningarstöð sem heyrir undir annan ráðherra en þar erum við að skoða hvernig hægt er að skipuleggja þjónustuna betur. Loks eru það talmeinin. Þar erum við búin að gera miðlægan biðlista sem er loksins tilbúinn og þar er verið að setja inn á listann. Síðan munu forráðamenn barna fá tilkynningu og þurfa að staðfesta að barnið sé enn að bíða. Það er verið að semja við sjálfstætt starfandi. Það er verið að ráða fleiri inn til Heyrnar- og talmeinastöðvar og við erum líka að nýta betur skólaheilsugæslu og það hefur verið auglýst eftir talmeinafræðingum þangað. (Forseti hringir.) Þannig að þetta er mjög viðamikið og við höfum fengið 500 millj. kr. á fjárlögum næsta árs og það verður örugglega ekki erfitt að nýta það.