158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:17]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur kærlega fyrir jákvæð viðbrögð. Það er alveg hárrétt sem hún segir: Þetta er ein arðbærasta fjárfesting sem samfélagið getur gert og hagfræðingurinn James Heckman hefur sýnt fram á að þetta skilar sér áttfalt til baka og því fyrr sem gripið er inn í, þeim mun betra. Hann er nóbelsverðlaunahafi. En við erum auðvitað að gera margt fleira í geðheilbrigðisþjónustu; þetta voru einungis greiningarnar. Við erum með geðheilsuteymi í hverju heilbrigðisumdæmi. Við erum að styrkja barna- og unglingageðteymi á Norðurlandi. Heilbrigðisstofnun Austurlands, þar sem mikið hefur dunið á, fékk sérstaka styrkingu. Við erum að bæta geðþjónustu í framhaldsskólum og svo mætti lengi telja. Á síðastliðnu ári bættum við í geðheilbrigðisþjónustu á þriðja milljarði kr.