fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Það er nú þannig með þennan stóra málaflokk og heilbrigðismálin almennt að þau eru svo víðfeðm og heyra undir ýmsa ráðherra. Þeim málaflokkum hefur kannski ekki endilega verið skipt með rökrænum hætti í tíð þessarar ríkisstjórnar að minnsta kosti. Hæstv. heilbrigðisráðherra fer með nokkra málaflokka í samstarfi við aðra ráðherra en ég hefði kannski mestan áhuga á að heyra hæstv. heilbrigðisráðherra lýsa því í örfáum orðum hver hennar sýn er á stærstu áskoranir í heilbrigðismálum Íslendinga, ekki bara á þessu kjörtímabili eða varðandi þessi þingmál sem eru núna til umfjöllunar eða verða núna í vetur, heldur svona bara í stórum dráttum.
Ég fyrir mitt leyti hef t.d. miklar áhyggjur af öllum þeim fjölda sem er að þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu og þó að það heyri ekki undir hæstv. heilbrigðisráðherra, þ.e. kerfið sjálft, þá hlýtur þó að heyra undir hæstv. ráðherra rótin að þeim vanda sem eru úrskurðir lækna um örorku og það sem heitir núna endurhæfing og er einhvers konar stig, einhver gátt inn í örorkuna. Og ég verð að segja að mér óar við þessum tölum sem ég sé hér, að fjöldi þeirra sem þiggja örorkulífeyri er kominn í hátt í 19.000 og endurhæfingarlífeyririnn yfir 7.000, samtals ríflega 26.000 manns sem eru komnir á þetta kerfi. Þetta er auðvitað fyrir utan þá sem eru á atvinnuleysisbótum og eldri borgara sem þiggja ellilífeyrinn sinn frá ríkinu. Þetta finnst mér a.m.k. vera stærsta áskorunin í heilbrigðismálum. (Forseti hringir.) Það væri fróðlegt að vita hvort hæstv. ráðherra geti verið sammála mér um það eða hvaða sýn hún hefur í stórum dráttum á þessi mál.