158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:21]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Þetta var prýðileg spurning hjá hv. þm. Sigríði Á. Andersen. Það eru gríðarlegar áskoranir sem blasa við í heilbrigðiskerfinu og þar er efst á blaði aukin eftirspurn vegna þess að við erum að eldast en líka vegna aukningar í langvinnum sjúkdómum. Það er margt þar undir: hjarta- og æðasjúkdómar, geðsjúkdómar, stoðkerfissjúkdómar o.s.frv., samfara því að okkur vantar fólk. Heilbrigðiskerfið eins og það er í dag er ekki sjálfbært. Við þurfum því að breyta hvernig við nálgumst kerfið, bæði hvernig við skipuleggjum það og veitum þjónustu. En við þurfum líka, og það er auðvitað besta leiðin, að efla almennt heilsufar sem við köllum lýðheilsu og þar gildir að byrja snemma. Þetta eru engin geimvísindi. Það gildir að borða hollt. Það gildir að hreyfa sig reglulega, þeir sem það geta, það gildir að leggja alúð við svefn, iðka geðrækt, forðast áfengi og tóbak. Þetta eru þessir áhrifaþættir heilsu. Svo er auðvitað mjög margt sem stjórnvöld þurfa að gera í sambandi við aðstæður í lífi, leik og starfi, menntun, atvinnu, húsnæði og efnahag o.s.frv. Og jöfnuður er mjög mikilvægur áhrifaþáttur heilsu. Þarna vil ég byrja að huga að lýðheilsu í gegnum öll æviskeið. Það er besta leiðin til að minnka vanheilsu síðar á lífsleiðinni.

Í sambandi við það sem hv. þingmaður ræðir um, þar fara ferlar eftir lögum sem tilheyra félagsmálaráðherra og ég veit að það er ekkert langt síðan þeim var breytt. Ég held að það þurfi aðeins að fara yfir það. Ég veit t.d. að þessi nýju lög áttu að verða til þess að það yrði minna álag á lækna við vottorðaskrif og annað. Það hefur ekki gengið eftir og ég veit ekki betur en að hæstv. félagsmálaráðherra hyggi á einhverja skoðun á þessu.