fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Það taka auðvitað allir undir orð hæstv. heilbrigðisráðherra um lýðheilsu. Það er alveg örugglega rétt að það er auðvitað besta meðalið við þeim sjúkdómum sem herja á landann. Það eru líka, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra nefnir, komin lyf við þessum langvinnu sjúkdómum og læknavísindunum hefur farið svo fram að menn lifa sem betur fer með alls konar sjúkdóma lengi, en það kostar, það er ekki ókeypis. Ég þekki það svo sem ekki en ég get ímyndað mér að læknismeðferð með lyfjum sé kannski aðallæknismeðferðin, hefur manni virst. Nú veit ég að hæstv. heilbrigðisráðherra hyggst leggja aftur fram frumvarp um viðbrögð við skorti á lyfjum í vetur. Ég vildi spyrja hverju liði heildarendurskoðun (Forseti hringir.) lyfjalaga með tilliti til þess sem hefur kannski verið mestur ágreiningur um við lyfjaframleiðendur og lyfjasala, þ.e. það að Ísland sé að dragast aftur úr þegar kemur að aðgangi að bestu lyfjum sem fáanleg eru (Forseti hringir.) vegna innkaupastefnu stjórnvalda. Er í gangi vinna í ráðuneytinu að þessu leyti?