158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:26]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra Ölmu Möller fyrir hennar yfirferð. Heilbrigðismál eru í skýrum forgangi í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Þrátt fyrir þrönga stöðu ríkisfjármála er verið að verja og styrkja þessa mikilvægu grunnþjónustu. Þörfin er líka mikil. Mikil innviðaskuld hefur safnast upp í heilbrigðiskerfinu á mörgum undanförnum árum. Þar eru biðlistar eftir margs konar þjónustu. Skortur hefur verið á hjúkrunarrýmum og öðrum úrræðum ásamt mönnunarvanda og miklu álagi á starfsfólk. Slíkan vanda leysum við ekki á einu ári. Ákveðnar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru sem betur fer nú þegar farnar að skila árangri. Á síðustu 12 mánuðum hafa 244 ný hjúkrunarrými verið tekin í notkun sem hefur létt mikið af álaginu á Landspítalanum. Enn fleiri hjúkrunarrými eru í undirbúningi og ný bráðamatsdeild við bráðamóttökuna í Fossvogi verður vonandi tekin í gagnið í haust.

Mig langar að horfa fram á veginn og spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra í hvað þessir 16,2 milljarðar eiga að fara á næsta ári. Hvar telur ráðherra að almenningur muni helst finna mun á heilbrigðisþjónustunni á árinu 2027 vegna aukinna fjárveitinga til málaflokksins samkvæmt fjárlagafrumvarpi? Og í öðru lagi: Bið eftir þjónustu ýmiss konar er enn eitt stærsta úrlausnarmálið. Hvaða aðgerðir telur ráðherra að muni helst skila sér í minni bið og betra aðgengi að heilbrigðisþjónustu?