158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:28]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur skemmtilega spurningu um hvernig ég sé fyrir mér að heilbrigðisþjónustan verði á næsta ári eftir þær aðgerðir sem við erum að ráðast í. Það tekur auðvitað alltaf tíma að koma fjármunum í skynsamlega nýtingu en það er ljóst að það verða færri að bíða eftir hjúkrunarheimili og fleiri af okkar elstu og helstu borgurum verða komnir í skjól. Það eykur þeirra lífsgæði og það sparar fjármuni því að plássin á Landspítalanum eru auðvitað þau dýrustu og vonandi gerir það Landspítala betur kleift að sinna sínum sérhæfðu verkefnum. Síðan vona ég auðvitað að fólk sem sækir bráðamóttökuna finni fljótt mun og vonandi starfsfólkið þar einnig eftir að bráðamatsdeildin kemst í gagnið í næsta mánuði og líka vegna þess að færri eru að bíða inni á spítalanum. Síðan erum við að styrkja mjög endurhæfingu þannig að ég vona að fólk finni fyrir því að það er minni bið eftir endurhæfingu og það sama á auðvitað við um fíknimeðferð.

Ég er búin að nefna heilmargt er snýr að biðlistum barna varðandi greiningar og meðferð ADHD, talmein og einhverfu. Síðan verður líka auðvitað búið að styrkja þjónustu við börn sem hafa orðið fyrir eða orðið vitni að ofbeldi. Varðandi aðgengi annars staðar þá erum við í risaverkefni til að bæta aðgengi að heilsugæslu og við erum auðvitað líka að huga að aðgengi að þjónustu á landsbyggðinni. Það er bið eftir skurðaðgerðum og þar hef ég mestar áhyggjur af augasteinsaðgerðum. Þar erum við vissulega að bæta í svokallaðan DRG-pott, við erum með samning við sjálfstætt starfandi og erum að fara yfir hvernig við getum stytt bið eftir skurðaðgerðum. Það er auðvitað forgangsröðun á hverjum tíma (Forseti hringir.) eftir því hvar biðin er mest.