158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa góðu spurningu. Eins og ég nefndi í mínum inngangi er það auðvitað eilífðarverkefni að huga að hagræðingu og umbótum. Í heilbrigðiskerfinu tölum við um stöðugar umbætur, að vera sífellt að rýna það sem verið er að gera og reyna að fá sem mest virði út úr þjónustunni, ná sem bestum árangri með sem minnstum tilkostnaði. Þarna er mjög margt undir. Það er auðvitað oft sýnd veiði en ekki gefin en það eru þó dæmi um að hægt sé að t.d. draga úr eftirliti án þess að það komi niður á árangri. Þetta var gert eftir hrun þegar okkur vantaði gríðarlega krabbameinslækna, þá var dregið úr eftirliti með brjóstakrabbameini og konunum leið, ef eitthvað er, betur við að þurfa ekki að fara eins oft í eftirlit. En þarna liggur ábyrgðin svolítið hjá stjórnendum, þeir þurfa að rýna sína þjónustu og sjá hvað er hægt að gera án þess að það bitni á öryggi eða gæðum.