fjárlög 2027.
Frú forseti. Hér spyr hv. þm. Ingibjörg Isaksen um hvernig eigi að ná markmiði um að fækka stöðugildum hjá ríkinu um 1% og það er alveg ljóst að það verður áskorun. Það er auðvitað sérstaklega lagt upp með að hlífa framlínustörfum. Það eru mörg önnur störf eins og millistjórnendur og slíkt og það er auðvitað ekki heilbrigðisráðherra sem ákveður hvernig þetta verður útfært á hverri stofnun heldur stjórnendur þar. Ég veit t.d. að Landspítali hefur þegar byrjað að rýna öll sín störf þannig að auðvitað eru alltaf tækifæri til þess og ég sé fyrir mér að þetta verði fyrst og fremst í gegnum náttúruleg starfslok.
Það er alveg rétt að það hefur verið mikill mönnunarvandi en samt hefur verið bætt ágætlega í t.d. læknamönnun á Landspítala síðustu árin og þar hefur læknum fjölgað. Auðvitað var það nauðsynlegt vegna styttingar vinnuviku en þessi fækkun fer auðvitað bara fram með nákvæmri rýni þar sem öll störf verða rýnd og það er alltaf gott að hafa virðisjöfnuna í huga þegar það er gert.