fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Ástæðan fyrir því að ég spyr að þessu er sú að þetta er algjörlega óútfært og er hugsað sem hagræðingaraðgerð í tengslum við að skila hallalausum fjárlögum. En mig langar aðeins að spyrja út í annað: Það er niðurskurður og hliðrun á fjármagni vegna nýs Landspítala. Við sjáum að fjárfestingarheimildir vegna nýs Landspítala eru skornar niður um tæpa 9 milljarða kr. í frumvarpinu miðað við áætlanir. Stjórnvöld vísa til þess að spítalinn eigi um 20 milljarða kr. í uppsafnaðar ónýttar heimildir og lækkunin hafi ekki áhrif á framkvæmdahraða.
Mig langar til að spyrja hvort þessi lækkun á fjárfestingarframlaginu sé raunveruleg bókhaldsleg tilfærsla eða hvort það sé hreinlega verið að hægja á framkvæmdunum markvisst og hliðra kostnaðinum til síðari ára til að láta halla ársins 2022 í rauninni nást fram. Ástæðan fyrir því að ég spyr að þessu er sú að þessi tilfærsla er, miðað við það sem ég sá, töluvert hærri en hefur verið undanfarin ár.