158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:38]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Það er nýbúið að fara yfir framkvæmdaáætlun nýs Landspítala og er á áætlun að framkvæmdum ljúki árið 2029. Þá verði byggingarnar vonandi afhentar og starfsemi geti hafist 2030. Það hafa orðið seinkanir vegna útboða, kærumála og ýmissa atriða en þetta hefur gengið betur núna hin síðari ár. Það er samt þannig að uppsafnaðar heimildir eru miklu hærri en þetta, ég man ekki töluna alveg, en jafnvel 20 milljarðar kr., þannig að þarna er verið að færa til og það er alveg ljóst að þetta mun ekki hafa áhrif á framkvæmdahraða.