158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:39]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Það er af mörgu að taka í þessum mikilvæga málaflokki sem er mikil samstaða um að við eyðum stórum hluta ríkisútgjalda í. Það er þó ekki sama hvernig við förum með þessa fjármuni skattgreiðenda. Reyndar mætti færa rök fyrir því að vegna mikilvægis og umfangs ættu eftirlitið og eftirfylgnin að vera þeim mun meiri. Við getum ekki litið fram hjá framúrkeyrslu sjúkratrygginga á síðasta ári. Eitt af því sem ég hef tekið upp hér á Alþingi er niðurgreiddur sjúkrakostnaður erlendis og spyr því: Er í öllum tilvikum um að ræða heilbrigðisþjónustu sem er ekki hægt að veita hér á landi? Í því sambandi nefni ég t.d. að hundruð milljóna hafa farið frá íslenskum skattgreiðendum í niðurgreiðslur vegna efnaskiptaaðgerða erlendis á undanförnum árum sem eru þó framkvæmdar hér á landi.

Ég get ekki heldur látið hjá líða að nefna hjúkrunarheimilin. Nóg hefur verið um samfélagsmiðla-„stunt“ frá stjórnarliðum í þeim efnum en þegar betur er að gáð fara ekki saman hljóð og mynd. Væri til of mikils mælst þegar ný stjórn hreykir sér af 244 nýjum rýmum að ekki væri látið eins og vinna þessarar stjórnar hefði skilað þessum rýmum, eða áætlaði þessi stjórn, samþykkti, fjármagnaði og byggði þessi nýju rými og allt á 18 mánuðum? En stjórnarliðar ganga lengra og tala um 1.400 ný rými, eitt þúsund og fjögur hundruð. Þegar ég svo skoða kostnaðarmat í framkvæmdaáætlun um uppbygginguna og ber saman við fjármálaáætlun og síðan fjárlög stemmir þetta bara alls ekki. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvernig á að fjármagna frekari uppbyggingu eða er það bara seinni tíma vandamál?