158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:41]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir spurningarnar. Ef við byrjum á sjúkratryggingum þá er það rétt að lækniskostnaður erlendis er að hluta til ófyrirsjáanlegur. Þarna er þrennt undir: Í fyrsta lagi meðferð sem er ekki hægt að veita hérlendis, og þar get ég nefnt sem dæmi mjög flóknar aðgerðir eins og líffæraflutninga, sem við gerum ekki hér. Það er ekkert vitað fyrir fram hvernig sá liður þróast hverju sinni og þar er það siglinganefnd sem ákveður.

Í öðru lagi eru það mál sem varða læknisfræðilega óásættanlegan biðtíma á Íslandi. Það er kannski helst það sem þingmaðurinn er að tala um og þar hefur mjög dregið úr. En það er rétt að þarna hafa efnaskiptaaðgerðir verið helstu aðgerðirnar, mjög fáar liðskiptaaðgerðir núorðið. Þær eru kannski færri en tíu og geta verið alls konar ástæður fyrir því. En ástæða þess, það er nú fyrir mína tíð sem var samið við aðila erlendis um efnaskiptaaðgerðir, er að á þeim tíma var það ódýrara en að gera þær hér heima. Ég hef hins vegar lýst miklum vilja til að taka þessar aðgerðir heim. Sjúkratryggingar: Ég veit ekki betur en að það sé byrjað að skoða undirbúning að því. Það þarf auðvitað að gera klínískar leiðbeiningar og annað slíkt og svo myndi auðvitað þurfa að auglýsa eða bjóða út eftir atvikum.

Í þriðja lagi er svo læknismeðferð samkvæmt landamæratilskipun. Það þýðir að fólk á rétt á að fá meðferð erlendis, jafnvel þó að það sé hægt að veita hana hér, og greiða þá bara á milli. Ég svara kannski með hjúkrunarrýmin í seinna svari.