fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Auðvitað undanskiljum við meðferðir sem ekki er hægt að veita hérlendis. Það er ekki það sem við erum að beina sjónum að. Biðtími á Íslandi réttlætir ekki að aðgerðir séu framkvæmdar erlendis sem er hægt að gera hér. Það á bara að bjóða þetta allt út, svo einfalt er það. Ég fæ vonandi að heyra frá hæstv. ráðherra í síðari umferð aðeins um hjúkrunarrýmin.
Hér í síðari umferð langar mig hins vegar að nefna fjármuni til heilbrigðisþjónustu við konur með endómetríósu, sjúkdóm sem getur valdið sárum verkjum og ófrjósemi og hrjáir allt að 10% kvenna. Ég vil gjarnan fá að vita hvort halda eigi áfram fjárveitingum til endóaðgerða innan lýðheilsutengdra aðgerða. Þekkir hæstv. ráðherra það eftir að kvótinn var minnkaður til aðgerða einkaaðila undir hennar stjórn? Hafa biðlistar lengst til muna? Hvað er að frétta af miðlæga biðlistanum sem hæstv. ráðherra hefur gjarnan talað fyrir? Þekkir hæstv. ráðherra hversu margar konur sem eru á biðlistum hjá einkaaðilum vegna endómetríósu þiggja tilvísun til Landspítala? Hvert er viðhorf hæstv. ráðherra til þess að sjúklingar hafi val þegar kemur að heilbrigðisþjónustu? Er það hreinlega mikilvægt?