158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:45]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á endó. Þar er tekin ákvörðun um hvernig fjármunir eru nýttir í biðlistaaðgerðir, eða það sem hv. þingmaður nefnir lýðheilsutengdar aðgerðir, eftir því hvernig biðin er. Þarna eru nokkrir aðgerðaflokkar undir. Það er náttúrlega bara verið að gera miðlæga biðlistann. Það er líka búið að styrkja mjög endóteymið á Landspítala því þar er auðvitað þessi þverfaglega meðferð. Það getur þurft aðkomu annarra skurðlækna. Ég veit að konur eru orðnar sáttar við meðferð í endóteyminu. Það var ekki alltaf þannig.

Fyrri spurningin sem hv. þingmaður nefndi um hjúkrunarheimilin: Það er auðvitað búið að fjármagna þau heimili sem er áætlað að verði opnuð á næsta ári og í fjármálaáætlun er búið að fjármagna þau öll. Það sem hraðaði uppbyggingu var m.a. (Forseti hringir.) að það var hætt við þá kvöð sem var á sveitarfélögum að þurfa að taka þátt.