fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég hef efasemdir um að það sé nægilegt að bara helmingur þjónustunnar á Landspítalanum sé kostnaðargreindur. Ef ég hef skilið rétt umræðuna er t.d. öldrunarþjónusta ekki DRG-greind og ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki til þess fallið að reyna að greina þetta eitthvað aðeins betur. En varðandi t.d. öldrunarþjónustuna langar mig að spyrja út í mál sem hefur lengi verið þráttað um í samskiptum ríkis og þeirra einkaaðila sem reka nánast öll hjúkrunarheimilin, þ.e. samninga um leigu á húsnæði. Mig langaði bara að vita í hvaða farvegi viðræður við þessa aðila eru og hvort það stefni í að ríkið greiði fyrir leigu á því húsnæði sem það sannarlega hefur gert samning um fyrir eldri borgara á hjúkrunarheimilum.