fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þm. Sigríði Andersen fyrir góða spurningu. Þetta er alveg rétt, það er tekist á um kostnað vegna húsnæðis. Þar hafa fjármunir úr Framkvæmdasjóði aldraðra verið nýttir til minni háttar viðhalds og slíks. Það kom út skýrsla um svokallaða leiguleið og til að gera langa sögu stutta þá verður byrjað að greiða fyrir húsnæði undir öldrunarþjónustu í einkaeigu á næsta ári. Þarna eru allmiklir fjármunir undir og það verður innleitt í skrefum, ef ég man rétt, á þremur árum. Þannig að þetta er í augsýn. Ég sat fund um þetta auðvitað með fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra.