158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:55]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir sömu spurningu og áðan. Ég held að svarið breytist ekki. Þetta þarf að rýna, hvert einasta starf, og það gera auðvitað stjórnendur á viðkomandi stofnunum. Það er alveg ljóst að þetta verða mörg störf og þetta verður ekki létt verk. Fyrirmælin eru að hlífa framlínuþjónustu og þá gefur augaleið að við erum ekki að fara að fækka fólki þar heldur í öðrum störfum.