158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:56]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en þetta skýrir kannski ekki alveg nægilega hvernig við ætlum að gera þetta, með hvaða hætti og hvað við eigum að fá út úr þessu. Það er alveg ljóst að við erum að fara að samþykkja þessi fjárlög núna fyrir lok þessa árs. Það þarf því heldur betur að fara að huga að þessu ef það á að gera þetta og þessi hagræðing á að nást fram við fjárlögin.

En mig langaði samt að nýta tækifærið núna og spyrja út í hjúkrunarrými og mannaflaþörf í öldrunarþjónustu. Það hefur komið fram hér að þau hafa fylgt eftir framkvæmdaáætlun síðustu ríkisstjórnar þegar kemur að uppbyggingu hjúkrunarmannvirkja og ég fagna því mikið og vil hrósa hæstv. ráðherra fyrir að fylgja þessu eftir og koma þessu á fót. Það er mjög jákvætt að við séum að fjölga hér hjúkrunarrýmum. Hins vegar er það viðurkennd staðreynd að mönnun fagfólks í hjúkrunarrýmum verður áfram mikil áskorun. Nú er verið að auka framlög til reksturs nýrra hjúkrunarrýma umtalsvert. En hvaða raunverulegu aðgerðir eru í gangi til að tryggja mannskap fyrir þessi hjúkrunarrými svo að ný rými standi ekki tóm vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki?