fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka þessa góðu spurningu. Vissulega voru einhver verkefni komin í gang en við höfum líka tekið upp miklu fleiri en voru á framkvæmdaáætlun áður og ég minni á að á sex ára tímabili, 2019–2025, fjölgaði rýmum um 69 samtals.
Mannafli er auðvitað stór spurning. Það eru gríðarlega miklar greiningar í gangi og við erum sérstaklega að skoða hvernig mönnun á hjúkrunarheimilum verður samsett. Þar hefur verið vinna í gangi sem byrjaði í tengslum við kjarasamninga við Eflingu. Þar erum við að skoða hversu hátt hlutfall þarf að vera hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar o.s.frv. Við erum líka að horfa á að ófaglært fólk fái sérstakt námskeið. Það er því mjög margt undir. Ég held að við verðum að herða á því að mennta fleiri sjúkraliða. Þar er samtal komið í gang. Síðan vinnur heilbrigðisráðuneytið að því að gera mælaborð þar sem við munum sjá rauntímamönnun.