fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Það vilja allir styrkja Ísland, sýna ábyrgð í efnahagsstjórn og byggja upp innviði á Íslandi. Við viljum betri heilbrigðisþjónustu, betri vegi, sterkari skóla, fleiri hjúkrunarrými og öflugri löggæslu. Flestir vilja líka að borga minni skatta og minni gjöld. En verkefnið er á endanum að dæmið gangi upp. Ríkið getur ekki ár eftir ár eytt meiru en það aflar. Við getum ekki endalaust rekið ríkið og ríkissjóð á yfirdrætti. Þess vegna er stærsta fréttin í þessu fjárlagafrumvarpi sem við ræðum hér í dag í raun mjög einföld: Við ætlum að ná endum saman.
Virðulegi forseti. Frá árinu 2019 til loka þessa árs er uppsafnaður halli ríkissjóðs áætlaður 866 milljarðar kr. Á sama tíma hefur vaxtakostnaður ríkissjóðs vaxið gríðarlega. Hann var um 59 milljarðar árið 2021 en er áætlaður um 168 milljarðar í ár. Auðvitað varð hluti af þessum halla til vegna áfalla sem stjórnvöld réðu ekki við. Við fórum í gegnum heimsfaraldur, jarðhræringar og mikla óvissu í alþjóðakerfinu en skuldirnar hverfa ekki þó að áfallinu ljúki og vaxtareikningurinn stækkar bara og stækkar. Því meira sem ríkið þarf að eyða í vexti því minna svigrúm höfum við til að gera allt hitt sem við viljum gera, til að reka heilbrigðiskerfið, til að mennta börnin okkar, til að byggja samgöngur og tryggja öryggi fólks. Þess vegna skiptir máli að ná aftur stjórn á ríkisfjármálum, ekki vegna þess að núllið sjálft sé einhver töfratala heldur vegna þess að við eigum ekki að senda reikninginn fyrir þjónustu dagsins í dag til framtíðarinnar, á vöxtum.
Virðulegi forseti. Það skiptir líka máli hvernig við náum endum saman. Það væri hægt að loka fjárlagagatinu með flötum niðurskurði. Það væri hægt að segja: Skerum bara jafnt niður alls staðar í heilbrigðiskerfinu, í skólunum, í löggæslunni, í þjónustu við börn og í þjónustu við eldra fólk. En það er ekki okkar leið. Aðhald án forgangsröðunar er ekki ábyrgt, það er bara niðurskurður og við ætlum að forgangsraða. Þess vegna erum við, á sama tíma og við náum ríkissjóði í jafnvægi, að halda áfram að byggja upp grunnþjónustuna. Við höfum sett af stað uppbyggingu á 1.400 hjúkrunarrýmum um allt land og markmiðið er ekki bara að fjölga rýmum. Þetta snýst um að eldra fólk fái þá þjónustu sem það þarf á að halda og á skilið. Einnig hjálpar þetta um leið Landspítalanum að sinna þeim sem þurfa raunverulega á sjúkrahúsmeðferð að halda. Við höldum áfram að byggja upp heilbrigðiskerfið, framkvæmdir við stækkun sjúkrahússins á Akureyri eru hafnar og ný matsdeild bráðamóttöku Landspítala á að taka til starfa í haust. Við bætum líka í þjónustu við börn og fjölskyldur en á næsta ári er gert ráð fyrir 8,8 milljörðum kr. í ný framlög til þeirra mála. Þar vinnum við í átt að mjög skýru markmiði: Börn eiga ekki að þurfa að bíða eftir þjónustu sem þau þurfa á að halda.
Við ætlum líka að halda áfram að vinna upp innviðaskuldina. Við höfum aukið fé í viðhald og fullfjármagnað vetrarþjónustu. Samþykkt hefur verið samgönguáætlun og undirbúningsframkvæmdir fyrir Fljótagöng hefjast strax í haust. Innviðafélaginu er svo ætlað að gera okkur kleift að ráðast í stór verkefni á borð við Sundabraut, Hvalfjarðargöng II og frekari jarðgangagerð. Þetta er algjör lykilpunktur. Við erum ekki að velja á milli ábyrgra ríkisfjármála og öflugs velferðarsamfélags. Við þurfum ábyrg ríkisfjármál til að geta staðið undir öflugu velferðarsamfélagi til lengri tíma.
Virðulegi forseti. Það er ekkert töfrabragð í þessum fjárlögum. Mér finnst mikilvægt að við segjum það bara eins og er að það þarf að halda aftur af útgjöldum. Það þarf að hagræða og já, það þarf líka að afla meiri tekna. Aðhald og hagræðing í frumvarpinu eiga að skila um 44 milljörðum kr. Nýjar tekjuráðstafanir eru svo um 22,6 milljarðar kr. Sú mynd að verið sé að loka hallanum fyrst og fremst með nýjum sköttum og gjöldum stenst því einfaldlega ekki. Þegar við þurfum að afla meiri tekna skiptir líka máli hvar við sækjum þær. Við teljum eðlilegt að bankar sem hafa skilað miklum hagnaði og arðsemi umfram eigin markmið leggi meira til. Við þekkjum það af úttekt síðustu ríkisstjórnar að þegar bankaskatturinn var lækkaður skilaði sú lækkun sér ekki til neytenda. Bankarnir hafa á síðastliðnum árum skilað sögulegum hagnaði á kostnað almennings og þeir eru vel aflögufærir til að leggja meira til uppbyggingar innviða á Íslandi.
Við teljum eðlilegt að sanngjarnt gjald sé tekið fyrir nýtingu á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Þetta á við um veiðigjöld og lagareldi en líka nýtingu á náttúruperlum í eigu íslensku þjóðarinnar. Því teljum við eðlilegt að ferðaþjónustan, sem hefur vaxið gríðarlega og byggist að stórum hluta á íslenskri náttúru og innviðum, leggi sitt af mörkum til að standa undir þeim.
En það þýðir ekki að allar ákvarðanir í þessum fjárlögum séu auðveldar, þær eru það ekki. Það er fullkomlega eðlilegt að fólk spyrji gagnrýninna spurninga um einstakar ráðstafanir. Hlutverk okkar hér á Alþingi verður að rýna þetta fjárlagafrumvarp vel, bæði hér í þingsal og líka í fjárlaganefnd.
Ég vil líka, virðulegur forseti, beina einni spurningu til stjórnarandstöðunnar því ég hef verið að hlusta á umræðuna í dag og í gær. Það má alveg gagnrýna bankaskattinn, það má gagnrýna aðhaldið og það má gagnrýna einstök gjöld. Það má kalla eftir meiri peningum í nánast alla málaflokka ríkisins. En þá verður líka að svara einni spurningu: Hvernig á að ná endum saman? Hvaða útgjöld viljið þið lækka? Hvaða tekna viljið þið afla? Eða viljið þið halda áfram að reka ríkissjóð á yfirdrætti eins og síðastliðin tvö kjörtímabil? Það er ekki hægt að vera á móti tekjuöfluninni, á móti aðhaldinu, og á sama tíma að kalla eftir meiri útgjöldum og segjast samt styðja markmiðin um að reka ríkissjóð án halla. Dæmið verður að ganga upp. Það gildir um ríkisstjórnarflokkana jafnt og minni hlutann á Alþingi.
Virðulegi forseti. Þetta eru ekki fjárlög þar sem öllum óskum er mætt. Slík fjárlög eru einfaldlega ekki til. Þetta eru fjárlög þar sem við tökum stöðunni eins og hún er og sýnum ábyrgð í rekstri ríkisins. Við hættum að reka ríkissjóð á yfirdrætti. Við höldum aftur af útgjöldum þar sem við getum og við öflum tekna þar sem við teljum sanngjarnt að gera það. Á sama tíma erum við að forgangsraða í heilbrigðiskerfið, til barnanna okkar, til eldra fólks, í menntakerfið, öryggi og innviði. Það er líklegast auðveldasta verkefni í heimi að vera stjórnmálamaður sem lofar öllum aukinni þjónustu og skattalækkunum á sama tíma. En það er erfiðara að láta dæmið ganga upp eins og síðastliðin ár hafa sýnt. Það er verkefni ábyrgra stjórnvalda og þannig náum við niður vöxtum og verðbólgu í íslensku samfélagi.