fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni kærlega fyrir sína ræðu. Mér fannst bara kristallast ágætlega í henni það verkefni sem við stöndum frammi fyrir hér. Það kristallaðist líka í henni sá reginmunur sem er á hægri mönnum og vinstri mönnum. Ég verð að víkja að því í upphafi og benda hv. þingmanni á að vissulega tók núverandi ríkisstjórn við erfiðu búi. Það var þó ekki eins þungt og menn vildu vera láta og jafnvel má kannski segja að það hafi verið ákveðin sýndarmennska í gangi þar, t.d. þegar valkyrjurnar ákváðu að taka hlé á sinni vinnu og síðan kom í ljós að ríkissjóður var betur staddur en af var látið.
Mig langar að forvitnast hjá hv. þingmanni. Nú lá verkefnið í rauninni fyrir snemma árs 2025. Af hverju var ekki ákveðið að vera með skynsamlegar væntingar um hvað menn gætu ráðist í miðað við þær forsendur sem lágu fyrir? Af hverju ákváðu fyrirsvarsmenn ríkisstjórnarinnar ekki að skapa hóflega væntingar um frekari útgjöld en leggja hins vegar allt í það að finna hagræði og spara? Mér fannst reyndar farið ágætlega af stað með því að t.d. óska eftir sparnaðartillögum, ríkisstjórnin gerði vel í því og þjóðin tók vel undir það. En síðan hefur ekkert sést af þeim tillögum. Hverju svarar hv. þingmaður um að það hefði verið rangt að stofna til jafn mikilla útgjalda og gert var á upphafsdögum þessarar ríkisstjórnar? Þá sætum við kannski ekki þessari súpu sem við sitjum í dag.