158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:09]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans andsvar. Sú súpa sem við sitjum í í dag er einfaldlega sú að í fyrstu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar var hallarekstur helmingaður og nú á að eyða honum alveg. Á sama tíma erum við búin að vera í sögulegri uppbyggingu innviða, hvort sem við lítum til samgangna, heilbrigðiskerfisins, öldrunarþjónustu eða fleiri þátta. Verkefnið er stórt. Það er alveg skýrt, og ég kom inn á það í minni ræðu, að þegar ríkisstjórnin tók við var uppsafnaður halli síðustu ríkisstjórnar 866 milljarðar og innviðaskuldin var metin á hundruð milljarða. Fólkið í landinu var líka að kalla eftir þjónustuaukningu, bættu viðhaldi vega, bættri heilbrigðisþjónustu, að amma og afi kæmust í hjúkrunarrými. Þannig að verkefnin voru vissulega stór þegar ríkisstjórnin tók við. Núna í næstum tvö ár hefur ríkisstjórnin unnið að því að spara þar sem hægt er að spara. Ríkisstjórnin byrjaði á sjálfri sér, lagði niður eitt ráðuneyti, fækkaði ráðuneytum, óskaði eftir sparnaðartillögum, hefur ráðist í umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir, sameiningar stofnana, fækkun starfsfólks, og reynt að tryggja að við séum samt að verja grunnþjónustu við íbúa landsins. Það var enginn sem lofaði því að skerða grunnþjónustu við íbúa fyrir síðustu kosningar. Allir flokkar ætluðu að bæta þá þjónustu en við tökum það verkefni alvarlega að ná endum saman.

Hv. þingmaður kom inn á það að hér kristallaðist einhver munur á hægri og vinstri mönnum. Ég vil í rauninni meina að hér kristallist aðallega munur á þeim sem eru ábyrgir í fjármálum og þeim sem eru það ekki. Ég hef setið í bæjarstjórn í tíu ár með Sjálfstæðismönnum í hreinum meiri hluta þar sem þeir lifa eftir þeirri kreddu að ekki megi hrófla við neinum gjöldum en einfaldlega að safna skuldum. Erum við að létta álögur á íbúa sveitarfélaga eða landsins með því að skila halla? Nei, við erum ekki að gera það. Við erum einfaldlega að fresta skattgreiðslum eða gjöldum og setja vexti á. Ég er tilbúinn að rökræða hin ýmsu gjöld og skattprósentur og fleira þegar við erum komin á núllið. En mér finnst það óábyrgt af stjórnmálaflokki sem var við völd og náði ekki endum saman að vera líka að tala um hugmyndafræðina á bak við tekjuöflun ríkisins.