158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:16]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir hans ræðu þó að ég hafi svo sem ekki verið sammála inntaki hennar. Það er rosalega auðvelt að koma hér upp og segja: Við erum að ná hallalausum fjárlögum, við erum að sýna ábyrgð. En hver á að borga? Á 12 mánuðum er verið að hækka skatta og gjöld á fólk og fyrirtæki í landinu um 64 milljarða með síðustu fjárlögum og fjárlögunum núna, um 64 milljarða. Það er það sem þessi ríkisstjórn er að gera og hún er að brjóta öll loforðin. Á kynningarfundi ríkisstjórnarinnar var sagt: Við ætlum ekki að hækka tekjuskatt á einstaklinga, tékk, þið eruð að gera það núna. Við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu, tékk, þið eruð að gera það núna. Við ætlum ekki að hækka skatta á lögaðila, tékk, þið eruð búin að gera það og eruð að gera það aftur. Þið eruð búin að brjóta öll loforðin sem þið voruð kosin út á, að þið ætluðuð ekki að hækka skatta og þið eruð að hækka skatta á alla. Ég sé að hv. þingmaður hristir hausinn þegar ég nefni tekjuskattinn. Með breytingum á persónuafslættinum situr minna eftir hjá hinum vinnandi manni. Þú getur kallað það hvaða nafni sem er, en það er það sem það er. Svo kemur ríkisstjórnin og hækkar allt með krónutölugjöldum um 5,2%. Hvaðan koma þessi 5,2%? Greiningaraðilar gerðu ráð fyrir 4,7–4,8% verðbólgu. Ríkisstjórnin fer fram með þetta, stefnir ekki að verðbólgumarkmiðinu, reynir ekki að mæta verkalýðsforystunni í að reyna að ná einhverri sátt og ná niður verðbólgunni. Nei, það er búmmað í 5,2% krónutöluhækkanir, kviss bamm búmm, sem mun leiða til þess að allir munu fylgja á eftir. Það er fullt af sveitarfélögum sem hafa núna verið að fella niður gjöld eða frysta gjöld og eru að horfa til þess í fjárhagsáætlunum sínum. En ríkið ætlar að fara áfram með 5,2%. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Finnst honum það ábyrgt að krónutöluhækkanir séu 5,2% þegar kallað er eftir því að við náum niður verðbólgu í landinu?