fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir sitt andsvar. Ég veit ekki hvort þingmaðurinn þekkir söguna um drenginn sem kallaði úlfur, úlfur. Ég hef hlustað á hv. þingmann hrópa hér skattahækkanir, skattahækkanir, skattahækkanir í rúmt ár. Hvaða skattprósentu er verið að breyta hér til að byrja með, tekjuskattsprósentu? Það er ekki til staðar. Tekjuskattur fyrirtækja var lækkaður á þessu kjörtímabili. En það er verið að skoða hvar er hægt að hagræða, hvar er svigrúm til að ná niður hallarekstri ríkisins og svo er líka verið að skoða hvar er hægt að sækja auknar tekjur þar sem þær eiga heima.
Tökum smá samanburð. Í tíð síðustu ríkisstjórnar var einfaldlega farin sú leið að vera með 115 milljarða meðaltalshalla á hverju ári og senda þann reikning til næstu ríkisstjórnar á vöxtum. Þetta er sá viðsnúningur sem er verið að vinna í núna. Skoðum svo sveitarfélögin í kringum okkur. Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn þegar hann tekur við stjórn í sveitarfélögum? Hann er búinn að hækka leikskólagjöld sögulega á síðustu árum. 60% hækkun á leikskólagjöldum á síðasta kjörtímabili, hækka matarkostnað eldri borgara um 70% á einu bretti. Þetta voru vorverk Sjálfstæðisflokksins. Það er holur hljómur í því að koma hér upp og tala um að uppfærsla á gjaldskrám, sem allar ríkisstjórnir hafa gert ef skoðað er aftur í tímann nema rétt þegar samið var um að gera það ekki, séu einhvers konar nýjar fréttir og eitthvað annað en Sjálfstæðisflokkurinn hefði gert. Þetta hefur hann bæði gert í ríkisstjórn og er að gera núna í sveitarstjórnum.
Þingmaðurinn spyr varðandi 5,2% krónutöluhækkanirnar hvort það væri eðlilegt að skoða aðra prósentutölu þar. Ég heyrði það í máli forsætisráðherra að það væri verið að ræða þessa hluti einmitt núna við aðila vinnumarkaðarins, verkalýðsforystuna og Samtök atvinnulífsins. Og eins og ég sagði í minni ræðu og mínum svörum og andsvörum hér áðan: Skoðum endilega allar hugmyndir en við föllum ekki frá því prinsippi að sýna ábyrgð og festu í rekstri ríkisins og reka ríkið hallalaust.