158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:21]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er náttúrlega bara munurinn á því að vera hægri og vinstri maður. Vinstri mennirnir halda að þeir geti skattað sig til hagsældar, skattað sig og endalaust lagt meiri og meiri skatta á fólk og fyrirtæki án þess að það muni breyta nokkru. Ég vil benda hv. þingmanni á það að á árunum 2013–2023 voru skattar lækkaðir um 313 milljarða. Hv. þingmaður nefnir hér einhverjar hækkanir hjá Reykjavík á sama tíma og ríkisstjórn hv. þingmanns er að hækka komugjöld sjúklinga um 100%. Ég þakka fyrir að krónutölugjöldin eru ekki 100% en í komugjöldum sjúklinga er 100% hækkun. Ég held að hv. þingmaður ætti að horfa til þess sem er verið að gera í Reykjavík núna, þar sem hefur verið staðið í miklum hagræðingum, þar sem verið er að taka til raunverulega í rekstrinum. Ekki færa einhverjar tölur á milli ára heldur taka raunverulega til í rekstrinum. Þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er með 70% fylgi í Ölfusi eru 36 tímar í leikskóla fríir og fyrir hina aukatímana borgar þú 17.000 kr. Þarna er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meiri hluta. Nýr meiri hluti undir stjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ er búinn að vera að fella niður gjöld sem voru lögð á í tíð vinstri manna. Sjálfstæðisflokkurinn í sveitarstjórnum um allt land hefur sýnt það og sannað að hann er að taka á rekstri sveitarfélaganna.

Mig langar líka að spyrja í lokin um bankaskatt upp á 6 milljarða. Mér heyrðist nú á ræðu hv. þingmanns að hann skilji í rauninni ekki mikið í eðli bankastarfsemi þegar sagt er: Það er nóg til og þeir geta borgað meira. Allir sem til þekkja og kunna að reikna út hver áhrifin verða eru búnir að sýna fram á að bankaskattur upp á 6 milljarða mun þrýsta upp vöxtum. 5,2% krónutöluhækkanir, bankaskattur upp á 6 milljarða, sem er líka að ýta upp vaxtastiginu. Er ríkisstjórnin alveg hætt að velta því fyrir sér að reyna að taka á verðbólgu og vöxtum í landinu? Miðað við þessi fjárlög er ekki verið að horfa til þess að reyna að létta undir með heimilunum í landinu með því að lækka hér verðbólguna eða vextina.