fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir seinna andsvar. Hv. þingmaður státar sig af því að í tíð síðustu ríkisstjórnar hafi skattar verið lækkaðir um rúma 300 milljarða, á sama tíma og hallarekstur ríkisins var rúmlega 800 milljarðar eða meðaltalshalli upp á 115 milljarða á ári í tíð síðustu ríkisstjórnar síðustu sjö árin. Þessu státar hv. þingmaður sig af og segir: Þetta er munurinn á hægri og vinstri manni. Það eina sem ég heyri er að það er munur á þeim sem lifa í einhvers konar hugsjónaveröld og eru ekki í tengslum við veruleikann og þeim sem beita raunhæfum sjónarmiðum til að ná stjórn á rekstri ríkisins. (Gripið fram í.) Það að lækka skatta og eiga ekki fyrir útgjöldum er ekki göfugt, það er ekki til að standa í ræðustóli Alþingis og monta sig af. Það að skila halla á rekstri ríkisins er einfaldlega frestun á skattgreiðslum sem framtíðarríkisstjórnir, framtíðarkynslóðir og -skattgreiðendur þurfa að greiða til baka og það á vöxtum. Það dregur úr súrefni kerfisins til að geta veitt þá þjónustu sem íbúar landsins kalla eftir. Íbúar landsins eru ekki að kalla eftir því að lifa í draumaheimi hv. þingmanns, að hér séu lækkaðir skattar sem ekki er innstæða fyrir. Íbúar landsins eru að kalla eftir betri heilbrigðisþjónustu, bættum vegasamgöngum, að við bætum menntakerfið okkar og það er það sem þessi ríkisstjórn er að gera á sama tíma og hún tekur til eftir uppsafnaðan halla fjármálaráðuneytis Sjálfstæðisflokksins. Þetta er munurinn á þessari ríkisstjórn og þeirri síðustu. Það að halda hér innblásnar ræður um að lækka skatta en skila halla sé jákvætt skref, það er bara birtingarmynd þessarar umræðu. Ég ber mikla virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum og því að sumir vilji lækka skatta en aðrir telji að við eigum að fjármagna opinbera kerfið. En mér finnst að grunnpunkturinn þurfi samt að vera að ná endum saman. Þegar við erum búin að ná endum saman getum við rætt hvort við eigum að lækka skatta og draga úr þjónustu eða hvort við ætlum að fjármagna aukna þjónustu. En á meðan við erum að safna halla þá er engin rökræða um hvort eigi að hækka eða lækka skatta. Ábyrg stjórnvöld skila hallalausum fjárlögum og það ætlum við að gera.