158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:26]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Uppsafnaður halli ríkissjóðs er 866 milljarðar kr. frá árinu 2019. Síðast var lagt fram fjárlagafrumvarp með afgangi árið 2017 fyrir árið 2018 og nú förum við loksins úr mínus í plús, fyrr en áætlað var af fyrri ríkisstjórn. Hvað þarf til að loka gatinu? Við höfum valið blandaða leið: aukningu tekna og aðhald í ríkisrekstri. Nánar tiltekið fara 44 milljarðar kr. í minnkuð útgjöld og tæplega 23 milljarðar kr. í nýjar tekjuráðstafanir.

Margir hv. þingmenn hér í þessum sal hafa skammast út í að verið sé að sækja tekjur án þess þó að útfæra eða leggja fram hvaða þjónustu á að skera niður í staðinn. Á sama tíma hafa ýmsir gagnrýnt að verið sé að beita aðhaldi án þess þó að leggja samtímis fram hvernig þeir vilja auka tekjur í staðinn. Þetta er tugmilljarða króna gat sem þarf að loka til að ná fram hallaleysi og því miður bera margir gagnrýnendur hér í þessum sal og utan hans hreinlega ábyrgð á þessum uppsafnaða halla ríkissjóðs en taka hins vegar á því enga ábyrgð.

Já, það er auðveld leið að lofa öllu fögru, undirrita viljayfirlýsingar og kjarasamninga, svo dæmi séu nefnd, án þess að eiga fyrir þeim, án þess að fjármagnið fylgi og án þess að útfært sé hvernig á að eiga fyrir útgjöldunum. Þetta er pólitíkin sem hefur verið rekin hér. Á sama tíma eru innviðir vanfjármagnaðir. Innviðaskuld samkvæmt skýrslu Samtaka iðnaðarins frá 2025 var á þeim tíma 680 milljarðar, þar af 265–290 milljarðar kr. í vegakerfinu. Sömuleiðis er gríðarleg innviðaskuld í heilbrigðiskerfinu. Síðan ég man eftir mér hefur heilbrigðiskerfið verið vanfjármagnað og ekki hefur verið tekið tillit til öldrunar þjóðarinnar, sem dæmi. Á síðasta kjörtímabili voru byggð 69 ný hjúkrunarrými og talað er um að 100 á ári þurfi til þess að halda í við þörfina. Deilur milli ríkis og sveitarfélaga stóðu í vegi fyrir uppbyggingu á þjónustu fyrir fólkið í landinu. Grunnþjónustan og kerfin sem almenningur treystir á hafa verið kerfisbundið veikt með vanfjármögnun og yfirlýsingar einar og sér duga ekki til að reka þessi kerfi.

Þessu er ríkisstjórn Kristínar Frostadóttur að snúa við. Nú hættum við að eyða um efni fram. Ófjármögnuð loforð og ófjármagnaðar skattalækkanir verða ekki einkennismerki þessarar ríkisstjórnar. Aðhald er vissulega til staðar í nýju fjárlagafrumvarpi enda forsenda þess að við náum að loka gatinu og skila hallalausum fjárlögum. En áhersla er lögð á að hlífa framlínustörfum, sem dæmi innan heilbrigðisþjónustunnar, hlífa velferðinni, greiðslum almannatrygginga, hlífa þeim kerfum sem við viljum standa vörð um hér í landinu og byggja upp innviðina.

Bara á tveimur árum er árangurinn þessi: Hallalaus fjárlög í fyrsta sinn í hartnær áratug og hærra hlutfall fjármagns sem rennur í grunnkerfin okkar þrátt fyrir aðhald á tekjuhliðinni. 244 ný hjúkrunarrými á 12 mánuðum í kjölfar tímamótasamkomulags sem leitt var af ríkisstjórninni milli ríkis og sveitarfélaga um að ríkið taki yfir fjármögnun á uppbyggingu hjúkrunarheimila til að leysa úr þeim hnút sem þjónusta við almenning í landinu var föst í. Stóraukin fjárfesting í samgönguinnviðum með nýju innviðafélagi og forgangsröðun fjármagns og líka með því að sækja auknar tekjur. Þessi ríkisstjórn er að snúa blaðinu við, engar ófjármagnaðar skattalækkanir, engin ófjármögnuð loforð. Þetta er erfiðari leiðin, óvinsælli leiðin: að eiga fyrir því sem maður eyðir í. En hún er sú ábyrga og ég hlakka til að takast á við það verkefni.