fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur fyrir hennar ræðu og það virðist vera búið að gefa út sömu línu núna hjá stjórnarþingmönnunum að tala um þennan 800 milljarða kr. yfirdrátt. Reyndar á vinstri stjórnin um 134 milljarða af þeim. En ég held að það væri hollt fyrir stjórnarþingmenn að lesa það þegar þeir hafa verið að setja þetta inn á samfélagsmiðla að almenningur er meðvitaður um það að þeir 600 milljarðar sem eftir eru eru til komnir út af Covid og jarðeldunum í Grindavík. Þau gleyma því alltaf þegar þau koma og tala um þennan yfirdrátt og það væri meiri bragur á því að taka það fram.
Mig langar að spyrja hv. þingmann — af því að verið er að tala um þennan yfirdrátt, nú var hvorugt okkar á þingi þegar Covid-árin voru hér en ég er minnugur þess að hafa horft á ræður flokkssystkina hennar sem voru á þingi og gagnrýndu ríkisstjórnina dag eftir dag fyrir að gera ekki nóg, eyða ekki nógu miklum peningum og að það hefði þurft að gera meira og það hefði þurft að eyða meiri peningum. Ég held að þessi umtalaði yfirdráttur væri líklega tvöfalt hærri ef flokkssystkini hennar hefðu fengið að valsa um ríkissjóð á Covid-tímanum. Mig langar að spyrja hv. þingmann að tvennu: Er hún sammála því að það hefði átt að fara eftir tillögum Samfylkingarinnar á Covid-tímanum og eyða meiri peningum í Covid? Mig langar líka að spyrja hana: Er hægt að lækka vaxtagreiðslur ríkisins með því t.d. selja Landsbankann og lækka þannig skuldir ríkisins? Og mig langar að spyrja hv. þingmann líka: Er hún sammála því að það eigi að selja Landsbankann?