158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:33]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir andsvarið. 140 milljarðar, segir hann að vinstri stjórnin beri ábyrgð á af þessum uppsafnaða halla upp á 866 milljarða kr., og áðan var talað um 134 milljarða. Það er auðvitað þannig að þetta eru árin 2025, sem eru þá fjárlög fyrri ríkisstjórnar, og árið 2026 þar sem var loksins verið að stíga skref í átt að hallaleysi. Auðvitað gætir áhrifa ákvarðana fyrri ríkisstjórnar í þeim fjárlögum sem var farið eftir af því að kosningarnar voru á óvenjulegum tíma og þingið samþykkti vissulega fjárlög fyrir næsta ár, þess þings sem tók við, það er hluti af þeim halla, og svo eru næstu fjárlög skref í átt að þessu hallaleysi.

Varðandi Covid og jarðhræringar þá er alveg rétt að það ber að gæta sanngirni þar. Covid, jarðhræringar og Úkraínustríðið hafa auðvitað áhrif og ber að taka tillit til þess. Alveg eins og núna þegar rætt er um vexti og verðbólgu þá sjáum við að þau áhrif sem eru til hækkunar á verðbólgu eru fyrst og fremst vegna stríðsins við Hormússund, hækkunar á eldsneyti og flugfargjöldum, þar kemur auðvitað inn fall flugfélags. Þannig að auðvitað eru ytri aðstæður sem vissulega hafa áhrif. Það var samt sem áður töluvert um ófjármagnaðar aðgerðir. Ég get bara nefnt sem dæmi nokkuð sem var gert nokkrum dögum fyrir kosningar: Kjarasamningar við lækna sem voru algerlega ófjármagnaðir og kostuðu töluverðar fjárhæðir. Auðvitað var ég sem læknir ánægð með þá kjarasamninga þangað til að ég áttaði mig á því að það var ekki búið að gera ráð fyrir þeim í neinum fjárhagsáætlunum, ekki 1 kr. Þannig að ég held að það liggi alveg ljóst fyrir (Forseti hringir.) að það verði líka að taka tillit til þeirra aðgerða sem voru ófjármagnaðar sem tengdust ekki endilega Covid, jarðhræringum eða Úkraínustríði. Tíminn er búinn. Afsakaðu það, forseti. Ég kem inn á hin svörin í seinna svari við andsvari.