fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég verð nú að viðurkenna að mér fannst hv. þingmaður vera nokkuð stóryrtur, svona miðað við efni. Hann var ekki mjög nákvæmur þegar kom að staðreyndum máls.
Ég vil fyrst spyrja hv. þingmann, af því að hann talaði eins og allt hefði verið í volli: Er ekkert að marka fjármálaráð? Er ekkert að marka Moody's? Er ekkert að marka Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Er ekkert að marka hæstv. ráðherra, Daða Má Kristófersson, þegar hann vísar til þess að þau tóku við góðu búi? Ég vek athygli á því að það var ekki bara Covid, Reykjaneseldar og Úkraínustríðið. WOW air fór líka á höfuðið með afleiðingum sem við þekkjum. Af því að hv. þingmaður talaði um að það hefði gengið svo vel með sölu Íslandsbanka þá var selt á mun lægra verði af þessari ríkisstjórn en fyrri ríkisstjórnum þegar kom að þeirri sölu. Ríkisstjórnin tekur svo við í desember 2024 og ákvað að breyta fjárlögunum 2025 með því að auka hallann með fjórum fjáraukalögum og náði ekki hallaleysi 2026 þrátt fyrir miklu betra ástand en gert var ráð fyrir. Tekjurnar jukust um 60 milljarða kr. árið 2025 miðað við fjárlögin. Og núna ertu með næfurþunnan afgang en látum það liggja á milli hluta.
Ég spyr hv. þingmann: Af hverju fór þessi ríkisstjórn ekki eftir ábendingum fjármálaráðs? Af hverju lofuðuð þið fyrir kosningar að hækka ekki skatta? Hvar er svo blessuð sleggjan? Vextir hafa hækkað eftir að þessi ríkisstjórn tók við. Þeir hafa hækkað. Eftir að fjárlagafrumvarpið er lagt fram hækka vextirnir. Ég er með þrjár spurningar: Af hverju lofuðuð þið að hækka ekki skatta? Hvar er sleggjan? Af hverju fóruð þið ekki eftir neinu í ráðleggingum fjármálaráðs?