158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:42]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir andsvarið. Varðandi skattana þá er það auðvitað þannig að við töluðum um það fyrir kosningar að hækka ekki tekjuskatt. Það hefur verið talað um virðisaukaskatt á ferðaþjónustufyrirtæki og þar held ég að skilningur fólks sé almennt sá að virðisaukaskatturinn sé í eðlilegu samræmi við virðisaukaskatt af annarri þjónustu.

Varðandi sleggjuna þá eru hallalaus fjárlög sleggjan og stefnt hefur verið að því frá upphafi í tíð þessarar ríkisstjórnar. Fjármálaráð, var það ekki þriðja spurningin? Fjármálaráðuneytið hefur, eins og ég skil það, yfirfarið ábendingar fjármálaráðs mjög rækilega, tekið undir sumt og mótmælt öðru. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hafi spurt fjármálaráðherra að því, ég geri ráð fyrir því. Þessi spurning hefur komið upp töluvert oft í andsvörum hv. þingmanns við ýmsa stjórnarþingmenn, þannig að ég tel að hann hafi fengið svar við þessari spurningu nú þegar.

Varðandi Íslandsbanka má nefna að flestir eru sammála um að seinni salan hafi heppnast betur heldur en hin fyrri. Ég held að það sé almenn sátt um það.

Varðandi fjáraukalög þá held ég að það sé alveg rétt að við þurfum að sýna aðhald. Auðvitað fagna ég persónulega sumu eins og aukinni fjárveitingu til Landspítalans. Það verður samt sem áður að sýna aðhald og við getum auðvitað ekki farið í halla aftur. Það er mitt mat. Ég held ég sé búin að svara öllum spurningum. En til að gæta sanngirni, eins og ég sagði í fyrra andsvari, þá er það alveg rétt að það voru jarðhræringar, Covid og stríð í Úkraínu, alveg eins og það eru ytri áhrif í dag. Það er mjög eðlilegt að það komi fram í umræðunni (Forseti hringir.) En við viljum samt sem áður ná fram hallaleysi þrátt fyrir þessar erfiðu ytri aðstæður.