fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Það fer að líða að lokum þessarar umræðu um fjárlögin. Umræðan hefur um margt verið mjög áhugaverð og upplýsandi og jafnvel góð á stórum köflum, ætla ég að leyfa mér að segja. Það er ánægjulegt að hér hafa verið gagnleg skoðanaskipti, mál krufin til mergjar og andstæð sjónarmið birt. Ég ætla að byrja á því, eins og ég hef gjarnan gert þegar við ræðum um fjárlög, að minnast á það að ríkisstjórnin fékk mjög gott tækifæri hér í upphafi síns ferils. Ég vil meina að ríkisstjórnin hafi gert mistök í því að horfa ekki til þeirra vinsælda sem hún hafði á þeim tíma til þess að vera með betri væntingastjórnun um hverju væri hægt að áorka á einum, tveimur eða þremur árum. Það er mitt mat að það hefði verið skynsamlegra fyrir ríkisstjórnina að fara varlega í allan útgjaldaauka og einbeita sér að því að ná fram sparnaði og hagræðingu í kerfinu. Ríkisstjórnin sem fór frá hafði í raun verið á þeirri vegferð að hún hafði ætlað að vaxa út úr vandanum og halda útgjöldum föstum en njóta hærri tekna. Ég veit ekki betur en að það hafi í raun gengið ágætlega. Og það gekk meira að segja svo vel að ef ég man rétt þá ákvað Reykjavíkurborg á sínum tíma að hafa sama háttinn á þótt það hafi kannski ekki gengið alveg eins vel hjá þeim. Ég verð líka að hrósa ríkisstjórninni á þeim tíma fyrir að hafa kallað eftir, sem mér fannst mjög góð hugmynd, sparnaðartillögum frá almenningi. Ég vil meina að ríkisstjórnin hafi fengið mjög góð svör við því og almenningur tekið sig til og sent inn mikið af tillögum og margar hverjar alveg ágætar. En því miður hefur kannski ekki sést nægilega mikið af þeim og hefði kannski mátt gera meira af því eins og ég er að vísa hér til. Auðvitað hefði útgjaldahliðin þá verið meiri á seinni tíma þessarar ríkisstjórnar.
Við stöndum nú frammi fyrir því að hér er að birtast hallalaust fjárlagafrumvarp og það er vel. Það er mikilvægt og ég held að við fögnum því öll. Þó að okkur greini kannski á um hvernig ríkisstjórnin ákveður að fara þessa vegferð þá held ég að við fögnum því öll að nú liggur fyrir að það eigi að reyna að ná hallalausum fjárlögum. Ég ætla að segja að það verður ærið verkefni. Ég hef líka ákveðnar efasemdir um að það náist og horfi ég þá kannski ekki síst til þess hvernig reksturinn hefur tekist til á því ári sem nú er að líða og ljóst að þar verður um mun meiri hallarekstur að ræða en við gerðum ráð fyrir í upphafi. Ég er líka ósáttur við það, svo að ég segi það strax, að mér finnst ríkisstjórnin að miklu leyti vera að senda reikninginn áfram til fólksins í landinu. Það er verið að hækka skatta, það er verið að hækka gjöld, jafnvel finna nýja gjaldstofna. Það er ekki mín skilgreining á ábyrgri fjármálastjórnun. Ég tel að þar eigum við í raun að hafa aga til þess að forgangsraða hlutum en líka átta okkur á því að ríkið á ekki að gera allt. Við eigum að einfalda stjórnsýsluna. Við eigum að passa upp á að skattfé sé nýtt betur og við verðum að muna að ríkissjóður skapar ekki verðmæti. Það er fólkið og fyrirtækin í landinu sem það gera. Það er mjög mikilvægt að við höfum það í huga.
Ég er þingmaður fyrir Norðvesturkjördæmi og mér finnst oft, þegar við ræðum fjárlög hér á þingi, þurfa að minna á hvernig verðmætin verða til. Þau verða m.a. til í sjávarplássum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Þau verða til hjá bændum og þau verða til í fiskvinnslunum, hjá iðnfyrirtækjunum og hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum. Þau verða til hjá fólki sem fjárfestir eigin peningum, ákveður að taka áhættu og skapa störf. En síðan kemur ríkisvaldið og tekur sinn hlut. Því miður er það þannig að þegar sá hlutur dugar ekki þá virðist svar þessarar ríkisstjórnar oft vera að taka aðeins meira. Þarna held ég að skilji skýrt á milli stjórnmálastefna og ég get vel skilið að vinir mínir í Viðreisn eigi kannski ekki alltaf bjarta daga í þessu stjórnarsamstarfi. Við Sjálfstæðismenn teljum ekki að skattgreiðandinn eigi alltaf að vera fyrsti viðkomustaðurinn sem stjórnmálamönnum dettur í hug að leita til þegar ríkissjóð vantar peninga. Við eigum hins vegar að líta inn á við. Við eigum að velta fyrir okkur hvað ríkið getur gert betur og hvernig ríkið getur gert hlutina ódýrari. Við þurfum jafnvel að velta því fyrir okkur hvort ríkið eigi hreinlega ekki að hætta að gera ákveðna hluti og láta öðrum það eftir.
Ég verð að koma aðeins inn á samgöngur því að þar finnst mér þessi pólitík vera áþreifanleg fyrir okkur íbúa í Norðvesturkjördæmi. Það er auðvelt að sitja í ráðuneyti í Reykjavík og teikna upp nýtt kerfi, gjaldtöku af samgöngum. En fyrir okkur íbúa landsbyggðarinnar er einkabíllinn ekki munaðarvara. Hann er hluti af grunninnviðum samfélagsins. Fólk þarf bíl til að fara í vinnu, það er að sækja þjónustu, fara með börn á æfingar og sækja heilbrigðisþjónustu og fyrirtækin þurfa að sjálfsögðu vegakerfi til að koma framleiðslu sinni á markað og koma með aðföng. Þetta skiptir máli, sérstaklega fyrir okkur í Norðvesturkjördæmi þar sem við höfum um langa hríð þurft að glíma við erfiðar samgöngur.
Virðulegi forseti. Það hefur töluvert verið talað um hagræðingu og ég er mikill stuðningsmaður hagræðingar. En hagræðing og niðurskurður er ekki sami hluturinn. Það er mikilvægt að við munum, þegar það er ákveðið hér í Reykjavík að einfalda regluverk, sameina stoðþjónustu o.s.frv., að það getur verið hagræðing en ef þjónustan hverfur hins vegar úr byggðarlagi þá er ljóst að það er ekki hagræðing, það er niðurskurður. Það er þjónustuskerðing og þetta þurfum við að hafa í huga. Ég hlýt einnig að víkja að heilbrigðisþjónustunni. Ég minni á að við getum sparað ótrúlega mikið á pappír með því að færa þjónustuna lengra frá fólki en reikningurinn hverfur ekki. Hann lendir bara annars staðar, lendir t.d. á sjúkraflutningum, hann lendir á fjölskyldum og hann lendir á fólki sem þarf að taka sér frí frá vinnu til að sækja sér heilbrigðisþjónustu um langan veg.
Virðulegi forseti. Mig langar að minnast á atvinnuvegi í mínu kjördæmi. Mig langar til að ræða aðeins um landbúnað, sjávarútveg, iðnað og ferðaþjónustu. Þetta eru ekki bara skattstofnar, þetta eru undirstöður byggðar. Þegar kostnaður þessara atvinnugreina hækkar vegna ákvarðana stjórnvalda þá gerist eitthvað. Það sem gerist er að fjárfesting minnkar, samkeppnishæfni versnar og störfum fækkar og áhrifin birtast að lokum í samfélögunum. Íslenskir bændur geta ekki tekið endalaust á sig aukinn kostnað. Þeir geta ekki flutt framleiðsluna til annarra landa. Sama gildir um sjávarbyggðirnar og við höfum séð í tíð þessarar ríkisstjórnar skattlagningu, verulega aukna skattlagningu, á sjávarútveginn sem hefur slæm áhrif.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Ég hlýt að óska okkur þingmönnum velgengni í því að ná að vinna þetta fjárlagafrumvarp eins vel og kostur er. Ég held að það sé einlæg ósk okkar allra að við náum að komast á þann stað hér (Forseti hringir.) að vera með hallalaus fjárlög. Ég er hóflega bjartsýnn á að það takist.