fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir gott andsvar. Það sem ég átti við með því að það væri einfalt að setja á gjöld var að oft eru þeir sem setja gjöldin á ekkert endilega að glíma við þau sjálfir. Það er það sem ég átti við í raun. Það kemur ágætlega á vondan að við sem búum á suðurhluta Vesturlands þekkjum ágætlega gjaldtöku fyrir notkun á vegum og auðvitað skiptir máli að það sé útfært með réttum hætti. Ég er sammála hv. þingmanni um að það skipti máli að horfa til margra þátta. Ég nefni bara t.d. samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem ákveða að setja sig niður þar sem þú býrð mögulega við aukna gjaldheimtu o.s.frv. Það skiptir auðvitað máli.
Varðandi kílómetragjaldið þá held ég að hugmyndin hafi í raun kannski ekki verið galin og í rauninni kannski bara góð. Auðvitað stóðu menn frammi fyrir því að hér var vaxandi hluti bílaflotans sem ekki tók þátt í að leggja til fjármuni til uppbyggingar vega, rafmagnsbílarnir, og því varð að fara ákveðna leið í þeim efnum. Ef maður horfir á tæknina voru menn auðvitað að gæla við að hægt væri að búa þannig um hnútana að gjaldtaka yrði einföld og það væri þá hægt að setja þetta saman með þeim hætti að þeir borgi sem nýta. Ég held að það sé í rauninni í grunninn ekki slæm hugmynd og jafnvel bara góð. Síðan hefur komið í ljós að við vorum frumkvöðlar í þeim efnum, sem hefur þýtt að við erum að glíma við alls konar vandamál, og kannski það hafi sett óþarflega dökkan blett á þetta. Kannski sjáum við til lengri framtíðar að þetta eigi mögulega eftir að hjálpa okkur. En ég vil meina að freistnivandinn sé ótvírætt fyrir hendi, að það er svo einfalt (Forseti hringir.) að auka gjaldheimtu í tengslum við kílómetragjaldið. Ég óttast að það verði of mikil freisting fyrir marga stjórnmálamenn.