158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:07]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir annað gott andsvar og tek undir með honum að það er auðvitað mikilvægt að menn vandi sig þegar verið er að setja upp svona kerfi. Það er algerlega augljóst í mínum huga að það að setja á skattheimtu tryggir auðvitað ekki endilega að innviðir batni. Það er lykilatriði að við notum þessa skattheimtu til að bæta innviðina og auðvitað er skattheimta af ökutækjum hugsuð í rauninni sem miklu meira en bara til að standa undir innviðum í samgöngum. Það er líka verið að nota þann skattstofn til þess að ríkið geti sinnt öðrum verkum en þeim. Það verður auðvitað áskorun fyrir okkur meðan við erum svona fá og landið jafn stórt og það er og jafnvel erfitt að halda vegi. Þá verður þetta okkur alltaf kostnaðarsamt.

Ég held hins vegar að við eigum að setja okkur kannski raunhæf markmið í þessum efnum. Gjaldtaka þarf að vera hófleg og skynsamleg og við sjáum bara hvað hefur gerst, t.d. í hluta af ferðaþjónustunni. Ef ekki er reynt að hafa stjórn á galskapnum geta hlutir farið út í að þetta verði hálfgert villta vestur og þar viljum við ekki vera. En verkefnið, eins og ég nefndi, hjá okkur núna er að vinna með þessi fjárlög og reyna að gera þau sem best úr garði og við Sjálfstæðismenn munum alveg örugglega leggja okkar af mörkum í að bæta það frumvarp.