fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Senn líður að lokum þessarar 1. umræðu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er nú eitt og annað ágætt sem hefur komið hér fram í umræðunni, sérstaklega sú gagnrýni sem félagar mínir í stjórnarandstöðunni hafa viðhaft hér á þessa linnulausu sókn ríkisstjórnarinnar í veski heimila og fyrirtækja. Það er mikilvægt og nauðsynlegt markmið, þegar horft er til lengri tíma, yfir lengra tímabil, að hafa það að markmiði að hafa ríkissjóð hallalausan og helst með ágætum afgangi. En það er engin sérstök efnahagsleg snilld að skila hallalausum fjárlögum ef menn líta svo á að hægt sé að sækja það sem upp á vantar í vasa skattgreiðenda án þess að það hafi nein áhrif. Í umræðunni hér hefur það verið talin sérstök réttlæting á þessari framgöngu ríkisstjórnarinnar, undir forystu hæstv. fjármálaráðherra, sem er kominn hér í salinn, og ég þakka honum fyrir það, að nú sé verið að klára þá vegferð sem hófst í fyrra til að ná niður halla á ríkissjóði.
Hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, sagði hér áðan að hallinn hefði verið „halveraður“ í fyrra og nú væri verið að klára verkið. En hvað blasir við okkur núna? Það sem átti að vera 28 milljarða kr. halli í fyrra, samkvæmt fjárlögum yfirstandandi árs, stefnir í 67,5 milljarða kr. Þetta er hartnær þrefalt hærri tala en lagt var upp með. Trúir því einhver raunverulega að þessi áform ríkisstjórnarinnar, sem lögð eru fram í þessu fjárlagafrumvarpi, haldi? Við sem erum hér inni þekkjum mörg a.m.k. með hvaða hætti menn settu kíkinn fyrir blinda augað hvað undirliggjandi spár varðar. Ég hvet hv. fjárlaganefnd til að skoða þetta allt af skynsemi og yfirvegun. Það er alveg ofboðslegt högg sem ferðaþjónustan fær í þessu frumvarpi og fleiri eru undir. Við horfum annað árið í röð á gríðarlega miklar skattahækkanir sem munu hafa afleidd áhrif og það getur ekkert annað gerst. En það sem mér hefur þótt verst er það sem birtist mér sem eitthvert allsherjarskilningsleysi á áhrifum þessara skattaaðgerða. Ég vona að hv. fjárlaganefnd líti til þess að reyna frekar að stækka kökuna en að skera sneiðarnar þynnri en nú er hægt að gera.
Við horfum svo á aðhaldshlutann, þessa 44 milljarða sem mér sýnist að drjúgum hluta vera samansafn af óráðstöfuðum útgjaldaheimildum fyrri tíðar. Það er ekki raunverulegt aðhald með tilliti til þess verðbólguþrýstings sem er í samfélaginu og þeirra áhrifa sem ríkisfjármálin hafa á verðbólguvæntingar, verðbólguþrýsting, verðbólgu og síðan vexti. Ég hvet virðulega ríkisstjórn, hæstv. fjármálaráðherra og fjárlaganefndina sérstaklega til að skoða hvort ekki séu forsendur til að sníða stakkinn aðeins þrengri hvað útgjaldahlið frumvarpsins varðar í stað þess að sækja sífellt meira fram á tekjuhliðinni með hækkuðum sköttum og hækkuðum gjöldum. Það skiptir engu máli þó að menn sveifli einhverjum orðaleppum og kalli hlutina öðrum nöfnum en gjalda- og skattahækkanir. Raunveruleikinn verður alltaf sá sami. Þetta eru bara gjalda- og skattahækkanir sem þessi stjórn virðist vera algerlega óseðjandi gagnvart.
Það var áhugavert hér áðan að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, virtist nefna að verið væri að ræða 5,2% hækkun krónutölugjalda við aðila vinnumarkaðarins. Mér heyrist nú að slík samtöl séu varla komin af stað ef mark er takandi á Vilhjálmi Birgissyni, formanni Starfsgreinasambandsins, og Finnbirni Hermannssyni, forseta ASÍ, sem lýstu því mjög skýrt í fyrradag. Ef verið er að ræða 5,2% hækkun krónutölugjalda við aðila vinnumarkaðarins er afgangurinn auðvitað farinn fljótt, að minnsta kosti stór hluti af honum, ef hvikað verður frá þeirri tölu. Það er þess vegna sem ég vil segja og skilja það hér eftir að hv. fjárlaganefnd hafi ekki það eina markmið, og þá er ég sérstaklega að tala til fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna þar inni, að skila hallalausum fjárlögum því að það er svo margt annað sem skiptir máli. Eins og Seðlabankinn hefur sagt mjög skýrt skiptir ekki síður máli, hvað verðbólguþrýsting varðar, að ríkissjóður kunni sér hóf á útgjaldahliðinni, að þrýstingurinn sé ekki linnulaus úr þeirri áttinni. Ég hef gagnrýnt þann misskilning, sem ég tel vera, hæstv. fjármálaráðherra, að peningar sem ríkissjóður tekur til sín dragi sjálfkrafa úr neyslu og þenslu í samfélaginu. Það atvikast ekki þannig ef ríkissjóður ráðstafar þessum peningum, á köflum í einhverja vitleysu, en í öllu falli ráðstafar þessum peningum og setur þar með þrýsting á verðbólgu í samfélaginu. Það er ekkert betra að ríkissjóður eyði tiltekinni krónu en einhver húsmóðir vestur í bæ eða fyrirtæki sem er þó að reyna að skapa arðsaman rekstur.
Það styttist svo um tímann að ég ætla að sleppa hér nokkrum punktum og eiga þá inni til síðari nota. Það er eitt atriði sem er eiginlega meira pólitísks eðlis en tæknilegs þó að það sé tæknilegt líka. Á bls. 125 og 126 í fjárlagafrumvarpinu er fjallað um svokallaða skattastyrki. Ég hef komið inn á þetta áður hér í ræðum og það er einhver ónotaleg tilfinning sem skín þarna í gegn. Það er eins og þeir sem skrifa þennan texta og setja þetta inn í fjárlagafrumvarpið, sem fjármálaráðherra ber auðvitað ábyrgð á, líti svo á að ríkissjóður eigi þetta í raun allt saman og leyfi síðan af einhverri mildi heimilum og fyrirtækjum að halda eftir einhverjum krónum. Sú útfærsla sem er teiknuð upp á bls. 125 og 126, þar sem skattastyrkirnir eru rammaðir inn, er með allt öðrum hætti en lög um opinber fjármál útskýra og leggja upp, þ.e. sú nálgun er skattastyrkirnir ná utan um. Það segir beinlínis um skattastyrki í 14. tölulið 3. gr. laga um opinber fjármál, í orðskýringum, með leyfi forseta: „Eftirgjöf á skattkröfu á hendur skattgreiðanda vegna sérstakra aðstæðna eða atvika.“ Þetta á auðvitað ekki við um samanburð á 24% virðisaukaskattsþrepinu og 11% virðisaukaskattsþrepinu. Þau eru bæði tilgreind í lögum og gert ráð fyrir því að þau séu eins og þau eru. Þetta er einhver misskilningur og hann er ónotalegur af því að hann skilur eftir þá tilfinningu að þeir sem höndla með það plagg sem hér er rætt líti raunverulega svo á að ríkissjóður eigi þetta allt saman.
Ég vil því óska eftir því að fjárlaganefnd taki þetta til sérstakrar skoðunar og geri eftir atvikum grein fyrir þessu í nefndaráliti sínu þar sem þessi atriði verða leidd fram með þeim hætti sem lög um opinber fjármál útlista en ekki sem einhver seinni tíma þróun, væntanlega á einhverjum hugðarefnum starfsmanna í fjármálaráðuneytinu. Ég get ekki ímyndað mér að hæstv. ráðherra hafi verið að vasast í þessu sjálfur. En það breytir því ekki að þau skilaboð sem hér eru send eru algerlega ótæk og sérstaklega hjá ríkisstjórn sem gengur jafn hratt um gleðinnar dyr og raunin er hvað hækkun skatta og gjalda varðar. Það setur að manni ugg ef það er raunveruleg afstaða hæstv. fjármálaráðherra að allt það sem er í neðra virðisaukaskattsþrepi sé skattastyrkur. Það er ekki þannig. Og nú koma menn fram með þau rök gagnvart baðlónaskattinum að það sé bara verið að færa á milli þrepa, upp í eðlilega þrepið. Nei, nei, baðlónin eru bara í þrepinu sem þau áttu að vera í. Það var ákvörðunin á sínum tíma. Hvað er þá virðisaukaskattur á matvöru? Er hann skattastyrkur til fjölskyldna landsins? Þetta er einhver della. Ég vil bara óska eftir því hér við lok þessarar ræðu minnar að þetta verði skoðað sérstaklega í nefndinni. Það er ekki ásættanlegt að þetta standi með þessum hætti í fjárlögum verði þau samþykkt í meginatriðum eins og þau liggja hér fyrir.