fjárlög 2027.
Forseti. Umræðan sem hér hefur farið fram er gagnleg. Hún sýnir vel um hvað við erum sammála og um hvað við erum minna sammála. Ég held að við getum flest verið sammála um markmið þessara fjárlaga, að ríkissjóður verði rekinn með ábyrgum hætti, að hallarekstri verði hætt og að ríkisfjármálin styðji við stöðugleika, lægri vexti og lægri verðbólgu. Ágreiningurinn virðist frekar snúast um hvernig best er að ná þessu markmiði og hvað sé raunhæft. Sumir ræðumenn hafa bent á að afgangurinn sem gert er ráð fyrir fyrir árið 2027 sé ekki mikill. Það er rétt. 5 milljarðar eru ekki mikið í stóra samhenginu. Tímamótin felast ekki í því hverju upphæðin er heldur því að mínus verði snúið í plús. Stóru tíðindin eru þau að hallarekstri ríkissjóðs sem hefur staðið árum saman verður hætt. Við erum að ná jafnvægi og skapa forsendur til þess að búa í haginn til frekari sóknar og bæta áfallaþol.
Í þessari umræðu hefur verið vísað til þess að afkoma ársins 2026 hafi orðið lakari en ráð var gert fyrir. Það er rétt og stærsta skýringin á því er í aðalatriðum einföld. Ríkissjóður er ekki í halla árið 2026 vegna þess að skatttekjur standi ekki undir almennum rekstri ríkisins, þvert á móti. Frumjöfnuður er verulega jákvæður. Vandinn er fyrst og fremst vaxtabyrði sem byggst hefur upp vegna skulda og verður æ þyngri þegar verðbólga og vextir eru hærri en gert var ráð fyrir. Þá er framúrkeyrsla á fjárlagaliðum þar sem eftirspurn ræður kostnaði, eftirspurn sem erfitt getur verið að sjá fyrir. Eftirlit með framkvæmd fjárlaga verður styrkt og við erum að bæta aðferðir til að meta útgjöld og fylgja þeim eftir. Það er einmitt það sem ábyrg fjármálastjórn felur í sér. Ég hef nefnt það í þessari umræðu og vil ítreka það að ég tel einnig að hér hafi hv. fjárlaganefnd mikilvægu hlutverki að gegna og ætti að auka þann þátt í störfum sínum. Undir þetta hafa sumir hv. þingmenn einnig tekið.
Forseti. Mér hefur verið tíðrætt um aðhald. Í frumvarpinu eru ráðstafanir sem draga úr útgjaldavexti um 44 milljarða kr. með markvissri blöndu aðgerða, almennu aðhaldi, fækkun stöðugilda, endurmati fjárheimilda og ýmsum sértækum ráðstöfunum. Með þessu móti náum við að halda hækkun heildarútgjalda ríkissjóðs, þegar búið er að taka tillit til launa, verðlags og gengisbreytinga, nálægt 1,2%. Það er umtalsvert aðhald. Þrátt fyrir aðhald beinum við fjármunum í arðbærar fjárfestingar, ekki síst í samgöngumálum og í heilbrigðismálum. Við drögum ekkert úr framkvæmdahraða byggingar nýs Landspítala og ekki úr skuldbindingum okkar samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það má deila um hvernig eigi að beita aðhaldi. Það má spyrja hvort ganga eigi lengra á einum stað eða skemur á öðrum. Það er eðlileg pólitísk umræða. Það gengur hins vegar ekki að segja samtímis að aðhaldið sé of lítið og ekki megi hækka tekjur ríkissjóðs eða auka útgjöld í öllum helstu málaflokkum. Þeir sem segjast geta gert betur en lagt er til í þessu frumvarpi verða að svara því hvaða leiðir þeir vilji fara. Vilja menn sjá meiri halla? Vilja menn að ríkissjóður taki meira að láni? Vilja menn lækka útgjöld meira og hvar á þá að gera það?
Forseti. Sú leið sem ríkisstjórnin hefur valið að fara er skynsamleg og ábyrg leið. Hún er ekki auðveld en hún er samt vel fær og mun skila góðum árangri. Við erum í hagkerfi þar sem verðbólga er of mikil og vextir of háir. Þá skiptir máli að ríkissjóður leggist ekki á sveif með eftirspurninni og keppi ekki við heimili og fyrirtæki um fjármagn. Aðhald ríkisfjármála er framlag ríkisstjórnarinnar til að skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Það er það sem skiptir heimilin og fyrirtækin í landinu langmestu máli.
Forseti. Þessi fjárlög eru ekki hafin yfir gagnrýni. Engin fjárlög eru það. Það er óvissa um marga hluti sem við ráðum illa við. Þess vegna er mikilvægasta verkefnið að reka ríkissjóð þannig að hann standi sterkari þegar eitthvað bregður út af. Það gerum við með því að stöðva hallareksturinn, halda aftur af útgjaldavexti og með því að fara betur með opinbert fé og með því skapa forsendur til þess að skuldir, verðbólga og vextir geti lækkað. Það er meginverkefni þessara fjárlaga.