158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:26]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Nú líður að lokum þessarar umræðu. Hún hefur í sjálfu sér verið ágæt en við eigum auðvitað eftir að ræða þetta meira í nefndum, fá umsagnir og vinna með málið. En ég held að það sé mjög mikilvægt í umræðunni, ef við ætlum að ná niðurstöðu sem er góð fyrir þjóðina, að menn tali út frá staðreyndum. Sumt er að lagast í umræðunni. Menn eru alla vega komnir á þann stað að það er enginn að fullyrða það lengur að hér hafi verið tekið við einhverjum brunarústum. Alþjóðastofnanir, fjármálaráð og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafa margoft bent á að svo er ekki. Mér finnst hins vegar dapurt að þurfa að leiðrétta það aftur og aftur þegar stjórnarliðar, og jafnvel hæstv. ráðherrar, koma hér og tala um þann halla sem þeir taka við og eru reyndar búnir að bæta mjög í sjálfir, eins og þetta hafi bara verið vegna þess að fólk hafi ekki nennt að vinna vinnuna sína. Ég fór að hugsa út af þessum orðaskiptunum áðan: Hvernig var þetta? Ég var hér þegar Covid var og ætla að segja ykkur eitt, ykkur sem á þetta hlustið og virðulegum forseta. Ég skal segja ykkur það að þetta var góður tími á Alþingi Íslendinga. Þrátt fyrir að hér væri fólk úr mismunandi flokkum með ólíkar lífsskoðanir og alla jafna ósammála um margt þá var samstaða í salnum og góð samstaða um að bregðast við hinum erfiðustu aðstæðum sem upp hafa komið. Það sama átti við um Reykjaneselda. Það er ekki stórmannlegt að reyna síðan núna að gera þetta tortryggilegt og láta að því liggja að hér hafi verið stjórnvöld sem hafi verið svo ábyrgðarlaus að safnast hafi saman halli upp á 600 milljarða kr. Covid er það næsta sem við Íslendingar höfum upplifað sem stríðsástand. Það var með ólíkindum að upplifa þetta úr stóli ráðherra þar sem landið var að lokast. Við þurftum að berjast fyrir lyfjum og lækningavörum og við þurftum að fara í aðgerðir til að halda efnahagslífinu gangandi því að öllu óbreyttu, með þeim aðgerðum sem þá var farið í út af heimsfaraldrinum, þá hefði allt saman farið í fjöldagjaldþrot og fjöldaatvinnuleysi. Mér finnst það einfaldlega fyrir neðan allar hellur að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og hennar stuðningsmenn séu að nota þetta ástand til að afsaka eigin gerðir eða aðgerðaleysi. Mér finnst það bara fyrir neðan allar hellur.

Mér finnst það líka ekki gott þegar hæstv. ráðherra, sem segir margt gott, fer t.d. yfir það núna af hverju framkvæmd fjárlaga hafi ekki gengið eins og vonir stóðu til. Hæstv. ráðherra sagði það sem og ríkisstjórnin að nú væru breyttir tímar. Agi væri kominn í reksturinn og nú væri hér ríkisstjórn sem kynni til verka. Af hverju var tvöfalt meiri halli en menn ætluðu? Það var vissulega út af fjármagnskostnaði, frávikin voru upp á 24 milljarða; sjúkrahúsþjónustan með frávik upp á 10 milljarða, heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa með 5,6 milljarða, lyf og lækningavörur upp á 5,5 milljarða, málefni aldraðra upp á 4,7 milljarða, fjölskyldumál upp á 4,5 milljarða, örorka og málefni fatlaðs fólks með 2,8 milljarða, orkumál með 1,9 milljarða, réttindi einstaklinga og dómsmálastjórnsýsla með 1,6 milljarða og hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta með 1,5 milljarða — allt saman mikilvægir málaflokkar en þú þarft að halda aga í öllum ríkisfjármálunum ef þú ætlar að ná árangri. Það er ekki rétt, eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur látið að liggja, að þetta sé bara kostnaður út af auknum fjármagnskostnaði. Það er einfaldlega ekki rétt. Reyndar voru það auknar tekjur líka þó að það hafi ekki verið sambærilegt við það. Nú erum við á þeim stað, eins og hæstv. ráðherra vísar til, að það er samstaða um markmiðið. Það er vegna þess að við erum löngu komin á þann stað að við eigum að geta snúið við blaðinu og náð hallalausum fjárlögum og farið að búa okkur undir þau áföll sem verða í framtíðinni því að það verða alltaf áföll. Það er enginn stjórnmálamaður eða einstaklingur sem getur lofað því að svo verði ekki.

Ég ætla ekki að fara í einstaka þætti. Eftir að hafa aðeins komið að þessum málum ætla ég að segja hverjir ég held að hafi verið stærstu veikleikarnir, ekki bara í þessum fjárlögum heldur þegar kemur að framkvæmd opinberra fjármála í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ég tel það hafa verið gríðarlega stór mistök að fara ekki eftir lögum um opinber fjármál þegar þessi ríkisstjórn tók við. Það voru gríðarlega mikil mistök að vera fyrsta ríkisstjórnin sem gerði það ekki. Hér hefði, eins og lög gera ráð fyrir, átt að leggja fram fjármálastefnu og ræða hana þar sem við værum að ræða stóru áskoranirnar. Ég nefni sem dæmi mannfjöldaþróunina. Þjóðin er að eldast og það eru tifandi tímasprengjur, ekki bara í þessum fjárlögum heldur í fjármálaáætluninni, þegar kemur að þessu máli. Það átti að leggja fram fjármálastefnu, það átti að fá umsagnir um hana, það átti að ræða hana, það átti að samþykkja hana og síðan átti að byggja fjármálaáætlun á þeirri fjármálastefnu. Það er það sem átti að gera. Það er það sem ríkisstjórnin sagðist ætla að gera í janúar en ákvað síðan að skella því fram á sama tíma og fjármálaáætlun þannig að engin umræða fór fram um fjármálastefnuna. Af hverju eru þessar reglur sem hljóma tæknilegar? Það var þverpólitísk samstaða um að fara í þetta verklag vegna þess að við vildum læra af þeim sem gerðu best. Og hér var hlustað á ráðleggingar sem fengnar voru frá alþjóðastofnunum. Þingnefndir fóru til annarra landa til að fá sínar bestu upplýsingar en því miður erum við komin áratugi aftur í tímann þegar kemur að vinnubrögðum um opinber fjármál. Og það sést, virðulegi forseti, þegar við skoðum þessi fjárlög og fjármálaáætlunina sem fékk mjög harða gagnrýni frá faglegu fjármálaráði. Fjármálaráð er ekki pólitískt, það er faglegt og það skilaði gríðarlega alvarlegum athugasemdum sem ekkert var gert með og fjármálaáætlunin var ekki einu sinni uppfærð.

Það er þess vegna sem ég segi, virðulegi forseti, að ég hafi áhyggjur af því að ríkisstjórnin sé búin að gefast upp á þessu verkefni. Þetta er ekki flókið mál en þetta eru erfið mál. Það er erfitt að vera í ríkisstjórn en það er hins vegar mjög eftirsóknarvert því að það er gott að geta látið gott af sér leiða fyrir land og þjóð. Það er alveg rétt að það verður að taka erfiðar ákvarðanir en það verður að gera það út frá bestu mögulegu upplýsingum. Það hefur ekkert breyst frá því að fjármálaráð gagnrýndi fjármálaáætlunina. Það hefur ekkert breyst hvað það varðar að þeir veikleikar sem þar voru dregnir fram eru enn til staðar. Það eru of bjartsýnar áætlanir. Við erum að safna skuldum og þessi afgangur, við vitum það öll, mun ekki ganga eftir. Ef við samþykkjum þessi fjárlög núna þá verða ekki hallalaus fjárlög árið 2027. Það er hundrað prósent. Við erum ósammála í stjórnmálum. Mér finnst það líka vont að höfuðsyndin öfund sé orðin að rökum fyrir öllum tekjuáætlunum ríkisstjórnarinnar. Í hvert skipti sem þau hækka skatta, sem er þvert á það sem þau lögðu af stað með og lofuðu, er reynt að gera út á slíkar tilfinningar. Í staðinn fyrir að reyna að meta það hvaða áhrif þessar skattahækkanir hafa á viðkomandi atvinnugreinar, á heimilin í landinu, á barnafjölskyldurnar, er alltaf reynt að láta að því liggja að þarna séu fyrirtæki og þarna sé fólk sem geti bara borgað meira. Það hafi það bara alveg nógu gott, það geti bara borgað meira. En skattkerfið getur ekki gengið út á það. Skattkerfi er náttúrlega til að fjármagna þá þjónustu sem við erum sammála um að við viljum hafa. En sömuleiðis verður skattkerfið að vera þannig að það sé með réttu hvatana. Það er orðið áhyggjuefni að við erum með hvata sem draga úr dugnaði og eru ekki hvetjandi til þess að fólk leggi mikið á sig og þá er ég að vísa til launaskatta og ýmissa annarra bóta sem reyndar hafa verið gerðar breytingar á til hins verra, eins og fjármálaráð hefur bent á. Það hefur bent á að núna séu fjármálin í auknum mæli að verða ósjálfbær út af breytingum ríkisstjórnarinnar sem við höfum ekkert rætt hér og ekki var með neinu móti komið til móts við þegar fjármálaráð lagði það fram í sinni álitsgerð.

Virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Við skulum vera bjartsýn. Við skulum vona að umræðan í þinginu og vinnan í þinginu verði til þess að breyta og bæta. Við Sjálfstæðismenn erum svo sannarlega tilbúnir í þá vinnu (Forseti hringir.) því að það er ljóst að það verður að gera gríðarlega miklar breytingar á þessu frumvarpi ef vel á að vera.