158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:37]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir þakkir fyrir umræðuna sem hefur verið býsna málefnaleg og gefist færi til að fara bæði yfir fjárlögin almennt og líka yfir málaflokka einstakra ráðuneyta. Eins og ég sagði í minni fyrri ræðu og margir hafa komið inn á hér eru stóru tíðindin að mörgu leyti þau að það er verið að leggja fram hallalaus fjárlög í fyrsta skipti síðan 2019. Það sem ég rakti í ræðu minni er að, ólíkt því sem stundum heyrist í umræðunni, umsvif ríkisins og fjármál ríkisins eru ekki alltaf að þenjast út heldur erum við þvert á móti komin niður á svipað hlutfall af landsframleiðslu nú og við vorum fyrir 2019 og höfum verið nokkurn veginn að meðaltali undanfarna áratugi.

Við erum á undan áætlun með hallalaus fjárlög og það er eitthvað sem við getum verið stolt af. Það sýnir ákveðna staðfestu og sendir skýr skilaboð, en ég held að það sé mjög mikilvægt að halda því til haga að þegar við horfum til fjármálareglnanna sem Alþingi setti og stöðugleikareglunnar, sem okkur finnst skynsamlegt að fylgja, þá erum við í rauninni ekki að fullnýta svigrúmið til raunhækkunar útgjalda sem í henni felst. Hún talar um að á hverju ári sé hægt að hækka útgjöld að raunvirði um 2%. Nú eru þau að lækka um 1,1% þannig að svigrúmið sem til staðar er miðað við stöðugleikaregluna er í kringum 40 milljarðar kr. Það er pólitísk forgangsröðun til þess að ríkið geri sitt til að minnka verðbólgu og verðbólguvæntingar sem skiptir verulegu máli fyrir heimili og fyrirtæki en auðvitað ríkið líka. Ég tók sem dæmi að ef við værum á evruvöxtum, ekki einhverjum evruvöxtum úti í heimi heldur bara evruvöxtunum sem ríkið sjálft fékk í útboði skuldabréfa síðastliðið vor, í samanburði við kjörin sem reiknast á markaði í þessari viku, hefðum við 112 milljarða meira til skiptanna í fjárlögum bara í lægri vaxtakostnaði vegna þeirra lána sem ríkið ber. Gríðarstórar tölur í öllu samhengi þeirra breytinga sem verið er að gera. Mjög mikið púður hefur farið í tekjubreytingar og tekjutilfærslur, ýmist í sköttum eða gjöldum, og það er bara eðlilegt. Ég á von á því að allur mánudagurinn fari í það líka vegna þess að þær breytingar eru útlistaðar í svokölluðum bandormi sem verður þá á dagskrá.

En mig langaði í þessari seinni ræðu að við munum samt eftir stóru myndinni. Ef við horfum á heildarskatta á Íslandi og berum saman við OECD þá getum við sagt að við séum háskattaland, eða hvað? Við erum með rúmlega 36% af landsframleiðslu sem við innheimtum í skatta. Það er um 2% yfir meðaltali OECD og hér er ég að miða við niðurstöðusamtölu sem er frá 2024. En ef við horfum hins vegar til Norðurlandanna þá erum við lægri en þau miðað við þjóðarframleiðslu, umtalsvert lægri í sumum tilvikum. Ég held að það sé sammæli meira eða minna allra hér í þessum sal að við erum og viljum vera norrænt velferðarríki þannig að við þurfum að taka það inn í myndina þegar við erum að ræða opinber fjármál og horfa fram á veginn hvar eðlilegt sé að þetta liggi. Þessi samanburður er raunar, og ég vil alveg nefna það, aðeins flókinn vegna þess að lífeyrisgreiðslur og skuldbindingar fléttast inn í þessa innheimtu skatta í ýmsum löndum, stundum mjög mikið, stundum minna, og það væri alveg þess virði að fjárlaganefnd myndi koma þessum samanburði á hreint því ef maður borar sig aðeins meira ofan í þetta er stóra myndin sú að skattar á einstaklinga eru hlutfallslega heldur hærri á Íslandi en annars staðar en skattar á fyrirtæki eru heldur minni. Samtök atvinnulífsins hafa lengi haldið á lofti samanburði þar sem skattar á fyrirtæki sýnast háir á Íslandi og eru þar búin að taka til hliðar ýmsar færslur sem tengjast lífeyrisskuldbindingum í öðrum löndum. En ég er ekki viss um að sá samanburður sé heldur sá rétti. Og til þess að við séum ekki að rífast um staðreyndir þá þyrfti eiginlega að hafa þessa heildarmynd sæmilega skýra því að við getum ekki gefið væntingar um að við séum og ætlum að vera norrænt velferðarsamfélag ef við erum ekki að tryggja fjármagn til þess að raunverulega vera það, sérstaklega þegar til framtíðar er litið.

Ég nefndi í minni fyrri ræðu t.d. tvo málaflokka sem kalla á breytingar, þ.e. breytt lýðfræði en líka aukin útgjöld til varnartengdra mála, bara svo dæmi sé nefnt. Fleira mætti nefna. Í þessum umræðum hér hefur fjárlaganefnd verið nestuð mjög ríkulega. Áhyggjur hafa verið áberandi, bæði af gjöldum og sköttum en líka af aðhaldi og aðhaldskröfum á ýmsa málaflokka. Eitt af því sem hefur borið hæst eru krónutölugjöldin og það hvort að ríkissjóður og Alþingi væri að senda óvarleg skilaboð út í kjaraumhverfið með því að miða við verðbólguspá, 5,2%, til að tryggja óbreytt raunvirði gjaldanna eða hvort það ætti að miða við verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%. Ég get alveg skilið þessi rök þó að til lengdar efist ég um skynsemi þess að gjöldin lækki að raunvirði á hverju ári í þau skipti sem verðbólga er hærri en verðbólgumarkmið, en verðbólga undanfarin 20 ár og raunar 30 ár líka hefur verið að meðaltali yfir 5% þótt verðbólgumarkmiðið hafi frá aldamótum verið 2,5%, þannig að það er ekki sjálfbært og ekki ábyrgt. Hins vegar getur út af kringumstæðunum núna, og ég hef alveg sagt það, komið til skoðunar að horfa á þetta í samtölum við aðila vinnumarkaðarins en þá skiptir auðvitað öllu máli hvort sveitarfélögin komi þar með, því það hefur á undanförnum dögum verið hótað gríðarlegum hækkunum á gjaldskrám, t.d. í Reykjavík, en þær voru auðvitað mjög miklar þar á gamla fólkið í sumar, 70%, mjög miklar á barnafólkið í Kópavogi síðustu tvö misseri og allt skiptir þetta máli fyrir fólk sem er að láta enda ná saman.

En ábendingarnar hafa verið fjölmargar og miklu fleiri en ég kemst yfir í þessari ræðu. Ég hef hins vegar punktað hjá mér undir umræðunni og veit að aðrir hafa gert það líka. Við eigum von á því að senda frumvarpið út til umsagnar og að venju fá fjölda umsagna þar sem okkur verður án efa bent á á kjarnyrtri íslensku hvað megi betur fara í þessum fjárlögum sem er gríðarlegt styrkleikamerki. Hér eru traustatök en það er ekki alveg einfalt að binda um þau þannig að bíti ef við horfum bara til þess hvernig útgjöldin t.d. á þessu ári hafa verið að þróast. Ég nefni heilbrigðiskerfi, sjúkratryggingar, algerlega ófjármagnaða kjarasamninga sem efnt var til um það leyti sem þessi ríkisstjórn var að taka við og var ekki sest að völdum. Þannig að það verður í mörg horn að líta en ég kvíði því ekki, ég beinlínis hlakka til að taka í hornin á fjárlögunum inni í fjárlaganefnd, eiga þar vonandi góð samtöl, kalla eftir dýpri greiningum og gögnum og líka í raun leggja grunn að hinni stóru umræðu sem við tökum síðan í tengslum við fjármálaáætlun í vor: Hvernig samfélag erum við að skapa með þessu öllu saman? Við erum norrænt velferðarsamfélag. Hvernig skiptum við útgjöldunum til þess að við tryggjum það? Og hvernig deilum við byrðunum þannig að sanngjarnt sé og við viðhöldum og varðveitum breiðan stuðning við verkefnið lífsgæðaland, velferðarland og land sem horfir til framtíðar með áherslu á menntun, fólkið okkar og öflugt atvinnulíf?