fjárlög 2027.
Herra forseti. Nú þegar 1. umræðu um fjárlög næsta árs er að ljúka langar mig aðeins til að horfa á heildarmyndina. Markmið ríkisstjórnarinnar um jafnvægi í ríkisfjármálum er vissulega mikilvægt og við getum flestöll stutt það. Um það þarf ekkert að deila og ég sagði það sama hér í gær. Ríkissjóður getur ekki verið rekinn með viðvarandi halla, safnað skuldum og látið sífellt stærri hluta tekna sinna renna í vexti. Spurningin er þó frekar eftirfarandi: Er raunhæft að ná þessu markmiði strax á næsta ári? Er aðferðin sem verið er að beita til að ná þessum hallalausu fjárlögum rétt og eru forsendurnar sem markmiðin hvíla á nógu traustar?
Byrjum aðeins á að fara yfir það sem liggur nú þegar fyrir. Árið 2025 var fyrsta heila starfsár þessarar ríkisstjórnar. Fjárlög gerðu ráð fyrir 63 milljarða halla. Í desember, þegar þrjár vikur voru eftir af árinu, taldi ríkisstjórnin að hallinn yrði hins vegar einungis 35 milljarðar. Niðurstaðan varð hins vegar 66 milljarða halli. Árið 2026, árið í ár, gerðu fjárlög fyrst ráð fyrir 15 milljarða halla sem var svo hækkaður í 28 milljarða og núna í byrjun september stefnir hallinn í 70 milljarða. Frávikið er tæpir 40 milljarðar á innan við ári. Samanlagt eru þetta rúmlega 130 milljarða halli á tveimur árum og það getur vel verið að hallinn verði enn meiri í lok þess árs. Þetta eru þau tvö ár sem þessi ríkisstjórn, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hefur borið ábyrgð á framkvæmd fjárlaga og bæði árin hefur niðurstaðan orðið í engu samræmi við það sem lagt var upp með. Ég nefni þessar staðreyndir vegna þess að þetta er grunnurinn sem næsta ár og næstu fjárlög byggjast á. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ríkissjóður fari úr tæplega 70 milljarða halla í tæplega 5 milljarða afgang á einu ári. Það er viðsnúningur upp á rúmlega 70 milljarða.
Þá kemur að trúverðugleikanum því til að trúa því að við náum þessu markmiði, sem er vissulega mikilvægt, þá þarf maður að sjá hvað á að gera öðruvísi og hvernig. Þar liggur vandinn. Ríkisstjórnin hefur ekki sýnt okkur, a.m.k. ekki í umræðunni hér síðastliðna tvo daga, hvað hún ætlar að gera með öðrum hætti á næsta ári en hún hefur gert undanfarin tvö ár. Það eru margvíslegar óútskýrðar forsendur sem við þurfum einnig að huga að. Sjúkratryggingar fara um 12 milljarða fram úr í ár og sjúkrahúsin um 11. Í frumvarpinu segir að það þurfi að bregðast við en það segir hvergi hvernig eigi að bregðast við. Aðhaldið er að stórum hluta frestun framkvæmda sem frumvarpið viðurkennir sjálft að geti kallað á fjárveitingar síðar. Varasjóðurinn verður minni en sá sem dugði ekki í ár. Verkfærin eru þau sömu, vinnubrögðin eru þau sömu, samt á niðurstaðan að vera önnur.
Þá förum við að forsendunum. Frumvarpið byggir á vorspá Seðlabankans. Síðan hún var gefin út hefur bankinn lækkað hagvaxtarspá sína fyrir árið í ár. Verðbólguviðmið kjarasamninga stóðst ekki í ágúst og í frumvarpinu segir að þróun virðisaukaskatts bendi til að eftirspurn hafi kólnað meira en gert var ráð fyrir en uppfærðar forsendur koma í rauninni ekki fram fyrr en við 2. umræðu frumvarpsins. Það er e.t.v. ekki himinn og haf á milli vorspár Seðlabankans og síðustu spár frá því í ágúst en það er þó munur þar á og staðan er síst að batna. Þetta þýðir að afgangurinn, 4,7 milljarðar af 1.700 milljarða veltu, er reiknaður út frá mynd sem ráðuneytið sjálft telur bjartsýna. Í svartsýnni sviðsmynd frumvarpsins hverfur afgangurinn og í staðinn kemur halli upp á 65 milljarða. Vissulega er það aðeins sviðsmynd en samt sviðsmynd sem gæti vel raungerst miðað við hvernig árið 2026 er að þróast og miðað við þær forsendur sem við höfum í dag eru þessar væntingar því miður byggðar á sandi. Ég segi þetta ekki hér af neinni ánægju. Ég vildi óska þess að þetta horfði öðruvísi við en það er mikilvægt að við sem sitjum hér á Alþingi, og ég tala nú ekki um sem erum í fjárlaganefnd, horfum á tölurnar eins og þær eru, ekki eins og við vildum óska þess að þær væru.
En þá að þeim sem borga, fólkinu í landinu. Rúmlega 34 milljarðar af afgangnum eru sóttir með nýjum eða hærri sköttum og gjöldum. Krónutölugjöld hækka um 5,2%, meira en spáð verðbólga næsta árs. Kílómetragjaldið hækkar um tæp 16%. Þrepamörk tekjuskatts eru fryst, barnabætur standa í stað og rýrna, vaxtabætur falla niður og komugjöld í heilsugæslu hækka um 100%. Ég spurði í umræðunni í gær og vil spyrja aftur hvort áhrif þessara breytinga sem verið er að leggja fram til að ná inn auknum tekjum í ríkissjóð hafi verið metin hvað varðar áhrif á fjölskyldur í landinu, ekki hver liður fyrir sig heldur bara samanlögð áhrif. Hver eru samanlögð áhrif á barnafjölskyldu á landsbyggðinni með verðtryggt lán og tvo bíla sem hefur á sama tíma tekið á sig hærri vexti og hærra verðlag? Það hefur ekkert svar borist við því og ég óttast að svarið liggi ekki fyrir, að áhrifin hafi hreinlega ekki verið metin.
Það sama gildir um fyrirtækin. Fjárfesting atvinnuveganna dregst saman á næsta ári samkvæmt frumvarpinu sjálfu. Á sama tíma er bankaskattur hækkaður verulega. Álögur á ferðaþjónustu hækka, framlög til nýsköpunar eru lækkuð og endurgreiðsla vegna rannsókna skorin niður. Fyrirtæki sem hafa tekið á sig hærri vexti og hærri gjöld tvö ár í röð fá nú þriðja árið af sama tagi, þriðja árið í röð. Hér kemur spurningin sem mér finnst skipta mjög miklu máli því að þessi heimili og þessi fyrirtæki sem hafa nú ítrekað tekið á sig auknar álögur og skertan stuðning og þar af leiðandi vissulega lagt sitt af mörkum með þeim rökum að það þurfi til að ná jafnvægi: Hvað gerist ef markmiðið um hallalaus fjárlög næst ekki? Ef afgangurinn verður ekki að veruleika? Ef árið 2027 fer eins og árið 2025 og 2026 stefnir í? Þá stendur ríkisstjórnin frammi fyrir sömu þremur kostum og alltaf: hærri sköttum, minni þjónustu eða meiri lánum og reikningurinn lendir aftur á sömu fjölskyldum og sömu fyrirtækjum sem þegar hafa borgað fyrir fyrirheit sem ekki gengu eftir. Þá vaknar spurning sem ég hef heldur ekki heyrt svarað í þessari umræðu: Hvað gerir ríkisstjórnin þegar og ef það kemur í ljós á árinu 2027 að markmið um afgang muni ekki standast? Þetta ætti að liggja fyrir í apríl samhliða framlagningu fjármálaáætlunar, a.m.k. ekki síðar. Verður gripið til markmiða um frekari uppsagnir, frekari frestun framkvæmda? Verða álögur hækkaðar á ný eða verður hallinn einfaldlega fjármagnaður með lánum og markmiðinu ýtt áfram um eitt ár? Hver er áætlunin ef þetta gengur ekki eftir, ef þetta klikkar? Hvar er sú sviðsmynd? Sviðsmyndagreining snýst ekki bara um að koma með einhverjar krónutölur ef allt fer á versta veg heldur að það liggi eitthvað fyrir um til hvaða aðgerða verði gripið ef áætlanir okkar ganga ekki eftir.
Það er eðlilegt að spyrja vegna þess að reynsla síðustu tveggja ára segir okkur að þessi staða mun því miður að öllum líkindum koma upp (Forseti hringir.) og þegar það er augljóst er ekki ábyrgt að bíða og sjá. Við eigum að vera reiðubúin og Alþingi á rétt á að vita fyrir fram hver viðbrögðin verða. (Forseti hringir.) Þetta er ástæðan fyrir því að ég spyr um tímasetninguna, aðferðirnar og forsendurnar, ekki vegna þess að markmiðið sé rangt heldur vegna þess að þegar markmiðið er byggt á veikum grunni og það bregst þá er kostnaðurinn ekki borinn af ráðuneytinu. Hann er borinn af heimilum landsins.