158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

mannabreytingar í alþjóða- og fastanefndum.

[13:31]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Sjálfstæðisflokks um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Árni Helgason taki sæti sem aðalmaður í atvinnuveganefnd í stað Guðrúnar Hafsteinsdóttur, en Guðrún Hafsteinsdóttir verði varamaður í stað Bryndísar Haraldsdóttur í sömu nefnd. Jens Garðar Helgason taki sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Ingveldar Önnu Sigurðardóttur og Ingveldur Anna Sigurðardóttir taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Árna Helgasonar. Einnig taki Ingveldur Anna Sigurðardóttir sæti sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Jens Garðars Helgasonar og Rósa Guðbjartsdóttir og Árni Helgason taki sæti sem varamenn í sömu nefnd í stað Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Njáls Trausta Friðbertssonar. Þá að Árni Helgason taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Sigurðar Arnar Hilmarssonar og Sigurður Örn Hilmarsson taki sæti sem varamaður í stað Hildar Sverrisdóttur í sömu nefnd. Árni Helgason taki sæti sem varamaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Rósu Guðbjartsdóttur, Jens Garðar Helgason taki sæti sem varamaður í fjárlaganefnd í stað Ingveldar Önnu Sigurðardóttur og Guðlaugur Þór Þórðarson taki sæti sem varamaður í utanríkismálanefnd í stað Njáls Trausta Friðbertssonar.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.