gildi umsóknar Íslands að ESB.
Ég vek athygli hæstv. forseta á því að hæstv. forsætisráðherra á tveimur mínútum gat ekki svarað einfaldri spurningu um fyrirliggjandi staðreynd. Hún gat ekki staðfest að Ísland væri ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Í hvaða feluleik er þessi ríkisstjórn eiginlega lent? Það er síðan mjög undarlegt, finnst mér, út frá hagsmunum ríkisstjórnarinnar og flokka sem kynnu að hafa áhuga á Evrópusambandinu, að vilja halda í umsókn Össurar Skarphéðinssonar og Jóhönnu Sigurðardóttur til eilífðar og hafa það sem upphafspunkt í viðræðunum. En eftir að ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum 6. mars að boða til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sagði hæstv. forsætisráðherra: „Þetta er umræða sem hefur hangið yfir íslenskri þjóð. Nú getum við ákveðið hvort við viljum loka á þetta mál fyrir fullt og allt.“ Var ekkert að marka þau orð hæstv. forsætisráðherra frekar en yfirlýsingar varðandi Evrópusambandið fyrir kosningar?