158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

gildi umsóknar Íslands að ESB.

[13:40]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Það getur vel verið að hv. þingmaður syrgi það að hafa þetta mál ekki á dagskrá lengur. Ríkisstjórnin setti það á dagskrá, spurði þjóðina og nú er búið að taka ákvörðun í þessu máli. Ég hef lýst því yfir opinberlega, af því að það hefur komið upp umræða um hvort það eigi að draga umsóknina til baka eða ekki, og ég hef sagt að við munum ekki gera það, ekki frekar en aðrar ríkisstjórnir sem hér hafa verið. Það liggur alveg fyrir hver afstaðan er í þessu máli. Það er enn þá verið að reyna að halda á lofti einhverjum formlegum, tæknilegum útfærslum í máli sem þjóðin er búin að afgreiða núna. (SDG: Hvernig?) Með því að segja nei við að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Það verður ekki meira aðhafst í þessu máli í tíma þessarar ríkisstjórnar, hv. þingmaður. Ég held að þú eigir að bera virðingu fyrir þjóðinni þegar hún segir: Við viljum ekki að halda áfram með þetta mál. Við erum sátt við okkar samband núna við Evrópusambandið. Við förum ekki lengra áfram með það. Það er ekki í mínum verkahring að fullyrða það hvað gerist hér um aldur og ævi. Það geta komið upp alls konar aðstæður, það geta komið aðrar ríkisstjórnir. Ég veit ekki hvað hv. þingmaður gæti tekið upp á sínum þingferli síðar ef hann situr síðar í ríkisstjórn. Ekki ætla ég að svara fyrir um allt í framtíð Íslands. Ég veit hvað þessi ríkisstjórn mun gera. Hún mun ekki halda áfram aðildarviðræðum en hún mun áfram virða gott og mikilvægt samstarf við Evrópusambandið líkt og aðrar þjóðir.