fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég mun nú gera grein fyrir helstu málefnum og verkefnum sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027.
(Forseti (BHar): Forseti biður um hljóð í þingsal svo að vel heyrist í ræðumanni.)
— Ég er með framsóknarrödd, hún er lág. Heildarútgjöld málefnasviðsins Örorka og málefni fatlaðs fólks eru áætluð rúmir 148,7 milljarðar árið 2027. Útgjöldin hækka um rúma 12 milljarða kr. milli ára þegar tekið hefur verið tillit til almennra launa- og verðlagsbreytinga. Fjárheimildir eru auknar um 2,3 milljarða vegna endurmats á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum og tæpa 1,8 milljarða til að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega. Með þessu er brugðist við þeirri þróun sem þegar hefur komið fram og fjárheimildir færðar nær fyrirsjáanlegri þörf. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar almennri aðhaldskröfu frumvarpsins enda lögbundnar. Samhliða er gert ráð fyrir að betri samhæfing þjónustu, markvissari endurhæfing og innleiðing hins nýja örorkulífeyriskerfis dragi úr vexti sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Mikilvægt verður að fylgjast náið með þeirri þróun á árinu og bregðast tímanlega við ef forsendur breytast. Á árinu 2027 verður áfram unnið að innleiðingu samþætts sérfræðimats. Umsóknarferli verða einfölduð, upplýsingar til umsækjenda bættar og umsóknir og samskipti við TR færð yfir á island.is. Áhersla verður lögð á samvinnu þeirra sem veita endurhæfingarþjónustu og á að fólk með skerta starfsgetu eigi raunhæfan kost á þátttöku á vinnumarkaði að hluta eða að fullu.
Virðulegi forseti. Málefni fatlaðs fólks eru mikilvægur þáttur í verkefnum ráðuneytisins. Ráðuneytið fer m.a. með réttindagæslu fyrir fatlað fólk og innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Á árinu 2027 verður áfram unnið að aðgerðum samkvæmt landsáætlun um innleiðingu samningsins. Þar er m.a. lögð áhersla á betra aðgengi að upplýsingum um réttindi og þjónustu, aukna fræðslu og stuðning við sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks. Heildarútgjöld til vinnumarkaðsmála og atvinnuleysis eru áætluð tæpir 57 milljarðar kr. Útgjöldin hækka um tæpa 7,8 milljarða kr. milli ára að meðtöldum launa- og verðlagsbreytingum. Þar munar mest um 6,5 milljarða aukningu vegna atvinnuleysisbóta. Sú fjárveiting byggist á uppfærðri þjóðhagsspá og tekur mið af þróun atvinnuleysis og fjölgun fólks á vinnufærum aldri. Samhliða þessu verður lögð áhersla á snemmtækan og einstaklingsmiðaðan stuðning við atvinnuleitendur til að draga úr langtímaatvinnuleysi. Þegar eru hafnar aðgerðir á vegum Vinnumálastofnunar til að draga úr atvinnuleysi og útlit er fyrir að þær muni skila góðum árangri. Sérstaklega verður unnið að því að efla úrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu. Til þess bætast við 100 millj. kr. til að styðja atvinnurekendur við að ráða fólk með skerta starfsgetu og fjölga hlutastörfum.
Virðulegi forseti. Fjárheimild Fæðingarorlofssjóðs árið 2027 er áætluð tæpir 35,7 milljarðar kr. og hækkar um 6,9 milljarða frá gildandi fjárlögum. Þar af má rekja 5,4 milljarða til fjölgunar barna, aukinnar orlofstöku, hækkandi meðaltekna foreldra og breyttra þjóðhagsforsendna. Þá bætast við 1,4 milljarðar vegna hækkunar hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Við munum verja rúmum 22 milljörðum til húsnæðis- og skipulagsmála. Meðal helstu verkefna ársins eru heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins, breytingar sem ætlað er að styrkja stöðu leigjenda og breytingar til að einfalda uppbyggingu húsnæðis. Stofnframlög til almennra íbúða nema 4,5 milljörðum árið 2027. Lækkun fjárheimilda um 3 milljarða frá gildandi fjárlögum felur ekki í sér að dregið sé úr markmiðum stjórnvalda um uppbyggingu almennra leiguíbúða. Hún endurspeglar raunverulegan framkvæmdahraða og þá staðreynd að fyrri fjárheimildir hafa ekki nýst að fullu. Áherslan er nú á að þær fjárheimildir sem veittar eru nýtist til fulls og leiði til raunverulegrar uppbyggingar. Samhliða verður einmitt unnið að því að ryðja úr vegi hindrunum í uppbyggingu, m.a. með samstarfi við sveitarfélög um lóðaframboð, einföldun regluverks og heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins. Við þurfum að fá sveitarfélögin í lið með okkur svo hægt sé að byggja almennar íbúðir. Það hefur ekki gengið nógu vel hingað til og félög sem byggja óhagnaðardrifið leiguhúsnæði eiga erfitt með að finna hentugar lóðir til uppbyggingar. Takist að hraða verkefnum og nýta fjárheimildina að fullu verður staðan metin að nýju í ljósi eftirspurnar og verkefna sem tilbúin verða til framkvæmda.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir það helsta frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu sem fram kemur í frumvarpi til fjárlaga árið 2027. Ég bind vonir við gott og farsælt samstarf við hv. þingmenn um þessi mikilvægu velferðar- og húsnæðismál á komandi þingvetri.